Akraneskirkja
Miðvikudagur 8. september 2010
Útfarir
Engar útfarir
Úr myndasafni
![]()
Orð dagsins
Því að ég, Drottinn, Guð þinn, held í hægri hönd þína og segi við þig: "Óttast þú eigi, ég hjálpa þér!"
(Jesaja 41,13)
Tenglar
Skírnir
Leó
For: Guðbjörg Ásmundsdóttir
og Birgir Heiðar Andrésson.
(4. sept.)
Hekla Dís
For: Guðrún Hjörleifsdóttir
og Hilmar Ægir Ólafsson.
(28. ágúst)
Hjónavígslur
Eiríkur Jóhannsson
og Guðbjörg Stefánsdóttir,
Vindakór 16, Kópavogi.
(28. ágúst)
Kári Steinn Reynisson
og Elín Björk Davíðsdóttir,
Steinsstaðaflöt 4.
(14. ágúst)
Fermingarstarf
Akraneskirkju
Fermingarstarfið heitir öðru nafni skírnarfræðsla og hefur eftirfarandi meginmarkmið:
- Að kenna grundvallaratriði kristinnar trúar.
- Að vekja og efla trú á Jesú Krist, Drottin vorn og frelsara.
- Að virkja fermingarbörnin í starfi safnaðarins, t.d. í helgihaldi.
Fermingarbörnum er kennt í Grundaskóla á miðvikudögum og í Safnaðarheimilinu Vinaminni á fimmtudögum. Fermt verður dagana 20. mars, 27. mars, 3. apríl og 17. apríl 2011.
Tvær athafnir verða alla dagana, kl. 10.30 og 14, nema 20. mars, þá verður fermt kl. 14.
Guðsþjónustur og æskulýðsfélag
Fermingarbörnin eru skyldug að sækja 6 guðsþjónustur (fjölskylduguðsþjónustur) yfir vetrartímann.
Fjölskylduguðsþjónustur verða eftirtalda sunnudaga í vetur:
11. október
8. nóvember
13. desember
10. janúar (2010)
14. febrúar
7. mars (æskulýðsdagurinn).
Sömuleiðis er ætlast til að ungmennin taki þátt í Æskulýðsfélagi kirkjunnar og sæki þar fundi þrisvar fyrir jól og þrisvar eftir áramót. Fundirnir eru á mánudagskvöldum kl. 20 (húsið opnað kl. 19.30) í húsnæði KFUM og K við Garðabraut og Iðnskólahúsinu (við hliðina á safnaðarheimilinu). Þar er ýmislegt gert til fróðleiks, uppbyggingar og afþreyingar!
Skálholtsferð
Fermingarbörnin sækja árlega fermingarnámskeið á haustdögum í Skálholti. Farið er í tveim hópum (sinn skólinn hvor) og er um dagsferð að ræða.
Skálholt er bæði helgur staður og merkur. Þar sat biskup Akurnesinga fyrr á öldum. Fermingarbörnin fá að kynnast sögu staðarins og njóta helgi og kyrrðar í hinni glæsilegu Skálholtsdómkirkju. Margt annað er gert til styrkingar og ánægju. Skálholtsferðir fermingarbarna hafa ævinlega notið mikilla vinsælda!
Söfnun fermingarbarna
Á hverju hausti ganga fermingarbörn í hús og safna fjármunum handa fátækum í Afríku. Þau fá leiðbeiningar áður en þau leggja af stað, tvö og tvö saman.
Með þessu skapast kjörið tækifæri fyrir þau til að meðtaka boðskap Krists um náungakærleika á áþreifanlegan hátt. Á unglingsárum, þegar skilningur vex og ungt fólk er að móta sér lífsstíl, er mikilvægt að fá að setja sig í samhengi við aðra í heiminum og skynja kraft sinn til þess að breyta rétt og hafa áhrif.
Haustið 2009 söfnuðu fermingarbörn á Akranesi 360 þús. kr. til hjálpar bágstöddum í Afríku. Þeir fjármunir komu sér mjög vel fyrir marga, eins og nærri má geta! Þetta er stórfé á mælikvarða Afríkubúa!
Fermingarlisti
Hér verður birtur listi í nóvember með nöfnum fermingarbarna, fermingardögum og tímasetningum þegar frestur til þess að gera breytingar verður liðinn. Fram að því verður listinn póstsendur til foreldra.