Sunnudaginn 8. september er fjölskylduguðsþjónusta og sunnudagaskóli í Akraneskirkju kl. 11. Tekið verður á móti börnunum með bók og límmiða og sögð biblíusaga. Þráinn Haraldsson og Alda Björk stjórna stundinni, Lenka Meteova spilar á píanó og orgel og Kór Akraneskirkju  leiðir söng.

Verið öll velkomin á skemmtilega fjölskyldustund í Akraneskirkju