Aðventuhátíð sem vera átti í kvöld, 8. desember, í Hallgrímskirkju í Saurbæ, er frestað til næsta sunnudags, 15. desember kl. 20

Gleðjumst saman á aðventunni á hátíðlegri stund.
Jólaminningar úr Hvalfirðinum, jólasálmar og -söngur.
Endum góða samveru með piparkökum og heitu súkkulaði.

Organisti Zsuzsanna Budai. Kór Saurbæjarprestakalls syngur jólasálma og leiðir almennan söng.

Ásta Marý Stefánsdóttir syngur einsöng og deilir jólaminningu.

Þær Valdís Valgarðsdóttir og Dúfa Stefánsdóttir munu einnig segja frá minningum um jólahald í sveitinni.

Meðhjálpari er Ágústa Björg Kristjánsdóttir.
Þráinn Haraldsson og Ólöf Margrét Snorradóttir leiða stundina.

Verið velkomin!