Jesús sagði: „Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða.“
Sunnudaginn 6. október kl. 11 er fjölskyldumessa í Akraneskirkju. Bænin er aðalumfjöllunarefnið en auk þess að biðja verður sungið af hjartans lyst. Biblíusaga um Jesú og bænina og börnin fá límmiða í bókina sína.
Jóhanna Elísa og Ólöf Margrét leiða messuna.
Verið hjartanlega velkomin til kirkju!