Kór Akraneskirkju heldur sína árlegu kaffihúsakvöld miðvikudagskvöldið 22. apríl og fimmtudagskvöldið 23. apríl. Dagskráin hefst kl. 20 bæði kvöldin.
Í boði verður fjölbreytt dagskrá í tali og tónum. Og í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningarétt á Íslandi, þá verður þessum elskum gert hátt undir höfði.
Sérstakir gestir verða þær Regína Ásvaldsdóttir
bæjarstjóri Akraness og Sigríður Thorlacius söngkona.
Regína kemur í sérstakt „sófaspjall“ og kaffihúsagestir fá að kynnast þessari ágætu konu aðeins betur en hún hefur verið farsæl í starfi á Akranesi. Sigríður Thorlacius mun leyfa gestum að njóta sinnar fallegu söngraddar. Kórinn flytur flotta söngdagskrá en einnig mun Sigíður syngja með kórnum.
Meðleikari á píanó er Tómas Guðni Eggertsson.
Aðgangseyrir kr. 2.500.
Forsala aðgöngumiða er í Versluninni Bjargi.