Kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10 – andleg og líkamleg næring alla miðvikudaga
Ritningarlestur og bæn ásamt ljúfum orgeltónum. Súpa í Vinaminni á eftir, kr. 1000.
Verið velkomin að njóta kyrrðar og eiga svo nærandi samfélag yfir súpu og spjalli.

Karlakaffi kl. 13:15 – spjallað við Jón Gnarr
Gestur karlakaffis í nóvember er Jón Gnarr sem flestum er kunnugur

Í karlakaffi fáum við góða gesti í heimsókn sem segja frá starfi sínu, áhugamáli eða miðla öðrum fróðleik.
Þetta er vettvangur fyrir herramennina að hittast þar sem er fræðsla og skemmtun og tækifæri til að spjalla.

Kaffi og meðlæti í lok samveru kr. 1.000