Minningarathöfn verður í Akraneskirkju föstudaginn 15. október kl. 20. Við minnumst þeirra barna sem létust í móðurkviði, í og eftir fæðingu. Ásta Marý Stefánsdóttir syngur, Hilmar Örn Agnarsson leikur á píanó og séra Þóra Björg leiðir stundina. Að stundinni lokinni verður farið að minningarreitt látinna barna í Akraneskirkjugarði.
Stundin er öllum opin og bjóðum við ykkur öll hjartanlega velkomin.
Stundinni verður streymt frá vef Akraneskirkju.