Home2023-01-05T21:45:34+00:00
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna
Vaktsími presta: 893-5900

Hallgrímskirkja í Saurbæ

Leirárkirkja
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Viðburðir framundan
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Engir viðburðir framundanAllt helgihald framundan

Ýmislegt

Engir viðburðir framundan

Fréttasafn

Sunnudagur 19. febrúar, sunnudagaskóli og guðsþjónustur

Sunnudagurinn 19. febrúar er sunnudagur í föstuinngang en tímabil föstunnar gengur svo í garð á öskudag, 22. febrúar. Tvær guðsþjónustur verða í prestakallinu næsta sunnudag, í Saurbæ og á Akranesi. Hallgrímskirkja í Saurbæ Guðsþjónusta kl. 11, Kór Saurbæjarprestakalls hins forna syngur undir stjórn og undirleik Zsuzsönnu Budai. Meðal annars verða sungnir sálmar eftir Hallgrím Pétursson. Prestur sr. Ólöf Margrét. Akraneskirkja Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjón sunnudagaskólaleiðtoganna Anítu og Jóhönnu. Jesús er ljós heimsins er [...]

15. febrúar, 2023|

Fræðslukvöld í Vinaminni: Bjarni Skúli Ketilsson, mánudagur 13. febrúar kl. 20

Við bjóðum til fræðslu og samverukvölda í Vinaminni í vetur með fjölbreyttum efnistökum. Fyrsta kvöldið er mánudaginn 13. febrúar (athugið breyttan tíma, var áður auglýst 6. febrúar): Myndlistamaðurinn Bjarni Skúli Ketilsson, Baski, segir frá verkum sínum, m.a. endurbótum á kirkjum prestakallsins. Í Vinaminni kl. 20 mánudaginn 13. febrúar! Næstu fræðslukvöld: Mánudaginn 27. febrúar: Samtal um sorg Mánudaginn 20. mars: Guðsþjónustan Mánudaginn 24. apríl: Kristrún í Frón

12. febrúar, 2023|

Sunnudagaskóli og Lionsmessa 12. febrúar

Sunnudaginn 12. febrúar er sunnudagaskóli í Akraneskirkju kl. 11. Saga dagsins er dæmisaga Jesú Krists um týnda soninn. Eftir sunnudagaskólann verður boðið upp á litastund í Vinaminni. Börnin geta litað mynd dagsins og foreldrar fengið sér kaffibolla. Um kvöldið er messa kl. 20 með þáttöku félaga úr Lions. Sr. Kristján Valur Ingólfsson fyrrum vígslubiskup í Skálholti, nú búsettur á Saurbæ og Lionsmaður predikar, félagar úr Lions lesa texta og karlakórinn Svanir syngja undir stjórn [...]

10. febrúar, 2023|

Opið hús 8. febrúar kl. 13:15

Minnum á bænastundina í Akraneskirkju kl. 12:10 og súpu á eftir í Vinaminni. Opið hús í Vinaminni annan hvern miðvikudag kl. 13:15 Miðvikudaginn 8. febrúar stýrir Ólöf Margrét dagskránni, létt spjall, fræðsla og skemmtun. Söngsystur úr tónlistarskólanum koma og syngja nokkur lög. Þær heita Hanna Bergrós, Hekla, Marta Lind og Guðrún Karítas. Verið velkomin í opið hús! Kaffi í opnu húsi kr. 500.

6. febrúar, 2023|

Karlakaffi miðvikudaginn 1. febrúar kl. 13:30

Einar K. Guðfinnsson er gestur okkar í Karlakaffinu nk. miðvikudag í Safnaðarheimilinu Vinaminni. Erindið hefst kl. 13:30. Karlakaffi er að jafnaði fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 13:30-15:00, þangað fáum við góða gesti í heimsókn sem segja frá starfi sínu, áhugamáli eða miðla öðrum fróðleik. Þetta er vettvangur fyrir herramennina að hittast þar sem er fræðsla og skemmtun og tækifæri til að spjalla. Kaffi og meðlæti í lok samveru kr. 500   Næstu samverur: 1. [...]

30. janúar, 2023|

Taizé-messa

Sunnudagur 29. janúar: Sunnudagaskóli í Akraneskirkju kl. 11 í umsjá Anítu og Ólafar, Valgerður leikur undir. Biblíusaga og söngur. Verið velkomin! Guðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Höfða kl. 12:45. Sr. Ólöf Margrét leiðir stundina, kór Akraneskirkju syngur, organisti Hilmar Örn. Taizé-messa í Akraneskirkju,  kl. 20 Taizé-messa á uppruna sinn að rekja til bæjarins Taizé í Suður-Frakklandi og byggist hún upp á endurteknum söngstefjum sem kalla fram hughrif kyrrðar. Taizé sálmar, ritningarlestur, hugleiðing og bæn. Kór Akraneskirkju [...]

25. janúar, 2023|

Sunnudagur 22. janúar

Viðburðum morgunsins, messu í Hallgrímskirkju í Saurbæ og Sunnudagaskóla í Akraneskirkju kl. 11 er aflýst vegna veðurs. Kvöldmessa í Akraneskirkju kl. 20 en þá á veðrið að hafa gengið niður.  

22. janúar, 2023|

Þorragleði í Opna húsinu 25. janúar

Velkomin í Opið hús miðvikudaginn 25. janúar 2023 þar sem við gleðjumst saman á þorranum Dagskrá hefst kl. 13:15 Þorramatur Skemmtiatriði, söngur og dans. Veislustjóri er Helga Braga Jónsdóttir, Gísli Einarsson verður á harmonikkunni, prestar og organisti taka einnig þátt. Skráning í síma 433 1500 / 433 1502 eða á netfangið olof@akraneskirkja.is fyrir hádegi 24. janúar. Aðgangseyrir kr. 2000

19. janúar, 2023|

Hallbera Jóhannesdóttir er gestur Opna hússins í Vinaminni 11. janúar kl. 13:15

Velkomin í bænastund og opið hús Fyrsta opna hús á nýju ári er miðvikudaginn 11. janúar, dagskráin hefst kl. 13:15 og lýkur um 14:30. Hallbera Jóhannesdóttir kennari, kemur í heimsókn og segir frá af sinni alkunnu snilld. Opið hús er annan hvern miðvikudag í Vinaminni kl. 13:15. Áhersla er á samveru og skemmtun, að fræðast og gleðjast saman. Dagskráin er sambland af tónlist, erindum frá góðum gestum og fræðslu og skemmtun að hætti hússins. [...]

9. janúar, 2023|

Gleðilegt nýtt ár!

Prestar, sóknarnefndir og starfsfólk safnaðanna í Garða- og Saurbæjarprestakalli óska ykkur blessunarríks nýs árs. Við þökkum ánægjulegar samverustundir liðinna ára og hlökkum til samveru í helgihaldi og safnaðarstarfi á nýju ári.  Helgihald og safnaðarstarf heldur áfram með hefðbundnu sniði og verið hefur, kvöldmessur verða áfram í Akraneskirkju auk fjölskylduguðsþjónustu einu sinni í mánuði. Bænastundir á miðvikudögum hefjast 11. janúar, sömuleiðis opið hús. Barna- og æskulýðsstarf hefst mánudaginn 16. janúar. Verið velkomin til kirkju! Akraneskirkja [...]

3. janúar, 2023|

Fögnum nýju ári

Nú árið er liðið Gamlársdagur, 31. desember: Guðsþjónusta á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða kl. 11:30 Kór Saurbæjarprestakalls syngur undir stjórn Zsuzsönnu Budai, sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar. Hvað boðar nýárs blessuð sól? Nýársdagur, 1. janúar: Hátíðarguðsþjónusta í Akraneskirkju kl. 14 Fögnum nýju ári í guðsþjónustu á fyrsta degi ársins. Atli Guðlaugsson og Bjarni og Guðlaugur Atlasynir, sem skipa Tindatríóið, syngja ásamt söngkonunni Björgu Þórhallsdóttur, organisti Hilmar Örn Agnarsson. Prestur er Ólöf Margrét Snorradóttir og [...]

29. desember, 2022|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top