Home2024-12-10T15:20:05+00:00
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna
Vaktsími presta: 893-5900

Hallgrímskirkja í Saurbæ

Leirárkirkja
Útfarir
Viðburðir framundan
Hjónavígslur
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Ýmislegt

Engir viðburðir framundan

Fréttasafn

Kalman – listafélag og Dúó Stemma halda fjölskyldutónleika í Vinaminni 27. nóvember kl. 14.

Kalman - listafélag heldur fjölskyldutónleika í Vinaminni á fyrsta sunnudegi í aðventu, 27. nóvember nk. sem hefjast kl. 14.   Tvíeykið og gleðipinnarnir í Dúó Stemmu, þau Herdís Anna og Steef, bregða á leik og flytja vetrarskemmdegisdagskrá með jólalegu ívafi fyrir alla fjölskylduna. Þau munu leika sér með íslensk þjóðlög, fara með þulur og sögð verður hljóðsaga um vináttuna með hjálp allskyns hljóðfæra og hljóðgjafa m.a. víólu, tromma, sandpappírs og hrossakjálka. Steinaspil Páls á Húsafelli [...]

24. nóvember, 2022|

Bingó í opnu húsi í dag kl. 13:15

Opið hús í Vinaminni annan hvern miðvikudag kl. 13:15 Í dag spilum við bingó - Skemmtilegir vinningar í boði kostar 500 kr þátttakan! Pétur Jóhannesson stýrir bingóinu. Umsjón með opnu húsi hefur Ólöf Margrét Kaffi að hætti hússins á eftir Verið velkomin!

23. nóvember, 2022|

Ný sálmabók tekin í notkun í guðsþjónustum 20. nóvember

Sunnudagur 20. nóvember Hallgrímskirkja í Saurbæ Guðsþjónusta kl. 11 - ný sálmabók tekin í notkun. Kór Saurbæjarprestakalls syngur, organisti Zsuzsanna Budai. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar. Meðhjálpari Ágústa Björg Kristjánsdóttir. Akraneskirkja Sunnudagaskóli kl. 11 Guðsþjónusta kl. 20 - ný sálmabók tekin í notkun. Kór Akraneskirkju syngur, organisti Hilmar Örn Agnarsson. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar. Meðhjálpari Fjóla Lúðvíksdóttir.

17. nóvember, 2022|

Vel heppnað kirkjunámskeið fyrir börn í Hvalfjarðarsveit

Síðastliðinn fimmtudag var börnum í Hvalfjarðarsveit á aldrinum 6-12 ára boðið á kirkjunámskeið í Vatnaskóg. Á námskeiðinu fengu börnin fræðslu um kirkjuna og starfið í Vatnaskógi. Einnig var farið í göngutúr um skóginn, hlustað á sögur, hoppað í hoppuköstulum og leikið í hinum ýmsum leikjum og tækjum í íþróttahúsi Vatnaskógar. Og ekki má gleyma dýrindis kökunni í kaffitímanum og pítsunni um kvöldið. Námskeiðið heppnaðist vel og það var einstaklega skemmtilegt að fá að kynnast [...]

14. nóvember, 2022|

Sunnudagur 13. nóvember – Kristniboðsdagurinn

Akraneskirkja: Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Jóhönnu Elísu og Ólafar. Biblíusaga, söngur og gaman. Kvöldmessa kl. 20. Kristniboðsdagsins minnst. Kór Átthagafélags Strandamanna sækir Skagamenn heim og syngur í kvöldmessu í Akraneskirkju. Stjórnandi Ágota Joó, Hilmar Örn organisti leikur undir. Sr. Ólöf Margrét þjónar. Velkomin til kirkju!

9. nóvember, 2022|

Sögur og söngur í opnu húsi 9. nóvember

Opið hús í Vinaminni kl. 13:15 Sögur og söngur fléttað saman, Hilmar leikur undir, söngfuglar frá tónlistarskólanum ásamt fleirum syngja. Sögur af ömmum og mömmum og fleiri hvunndagshetum í bland við gamlar dægurlagaperlur. Opið hús er í Vinaminni annan hvern miðvikudag kl. 13:15. Áhersla er á samveru og skemmtun, að fræðast og gleðjast saman. Dagskráin er sambland af tónlist, erindum frá góðum gestum og fræðslu og skemmtun að hætti hússins. Umsjón með starfinu hefur [...]

7. nóvember, 2022|

Allra heilagra messa

Sunnudaginn 6. nóvember, er Allra heilagra messa í kirkjum landsins. Á þeim degi minnumst við látinna ástvina og heiðrum minningu þeirra sem hafa kvatt okkur síðastliðið ár. Við hátíðarmessu kl. 20 í Akraneskirkju verða lesin nöfn þeirra sem voru jarðsungin í Garða- og Saurbæjarprestakalli frá Allra heilagra messu árið 2021. Einnig verða tendruð kertaljós til minningar um látna ástvini. Messan er gott tækifæri til að heiðra minningu þeirra sem hafa kvatt okkur og eins [...]

6. nóvember, 2022|

Rautt altarisklæði

Akraneskirkja á nokkur mjög falleg altarisklæði sem prýða altari kirkjunnar, eru þau í mismunandi litum eftir tíma kirkjuársins og jafnvel einstakra daga. Altarisklæðið sem þessa dagana prýðir altari Akraneskirkju eru afburðafalleg úr vönduðu svörtu og rauðu flaueli.  Það er útsaumað af Unni Ólafsdóttur í Reykjavík og gefið kirkjunni þann 17. júní 1944 af hjónunum Haraldi Böðvarssyni útgerðarmanni og Ingunni Sveinsdóttur konu hans. Rauði liturinn er litur heilags anda og nándar Guðs, litur baráttu trúarinnar [...]

2. nóvember, 2022|

Karlakaffi

Miðvikudaginn 2. nóvember er karlakaffi í Vinaminni. Gestur að þessu sinni er Björn Þór Björnsson sagnfræðingur. Hann er að vinna að bók um sögu knattspyrnunar á Akranesi. Þar mun hann rekja söguna allt frá stofnun Knattspyrnufélagsins Kári árið 1922 og allt til dagsins í dag. Í kaffinu mun hann segja frá bókinni og  sögu knattspyrnunar á Akranesi. Þá mun hann svara spurningum og boðið upp á kaffi. Allir karlar velkomnir.

1. nóvember, 2022|

Sálumessa Gabriel Fauré Hafbjargarhúsinu laugardaginn 5. nóvember kl. 14.

STÓRVIÐBURÐUR Á VÖKUDÖGUM Á Vökudögum, laugardaginn 5. nóvember nk. kl. 14 verður eitt fegursta verk tónbókmenntanna, Sálumessa (Requiem) eftir Gabriel Fauré flutt í Hafbjargarhúsinu á Breið. Flytjendur eru Kór Akraneskirkju ásamt einsöngvurunum Jónu G. Kolbrúnardóttur sópran og Hrólfi Sæmundssyni baritón, ásamt 8 manna strengjasveit. Una Sveinbjarnardóttir er konsertmeistari og leikur á einleiksfiðlu, Elísabet Waage leikur á hörpu og Steingrímur Þórhallsson á orgel.  Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson. Aðgangseyrir er kr. 3.500 og miðasala er [...]

31. október, 2022|

Opið hús miðvikudaginn 26. október kl. 13:15

Gestir opna hússins eru þeir sr. Hjálmar Jónsson, fyrrum Dómkirkjuprestur, og rithöfundurinn Sigurbjörn Þorkelsson. Nýverið kom út bók sr. Hjálmars, Stundum verða stökur til, en þar fer hann á kostum í leiftrandi kveðskap og frásögnum. Sigurbjörn hefur ritað greinar og smásögur um lífið og trúna, og sömuleiðis gefið út nokkrar ljóðabækur, sú nýjasta heitir Lífið er ferðalag. Þeir félagar verða með gamanmál, kynna sig og verk sín. Kaffi og meðlæti í lokin. Umsjón hefur [...]

24. október, 2022|

Kalman listafélag – Hundur í óskilum á tónleikum í Vinaminni fimmtudaginn 27. október kl. 20

Tveggja manna stórsveitin ,,Hundur í óskilum" kemur fram á tónleikum Kalman - listafélags fimmtudaginn 27. október nk. kl. 20. Þár blása þeir nýju lífi í gamlar hækjur og eldhúsáhöld, grauta í þjóðararfinum og særa fram nýjan hljóm úr gatslitnum ellismellum og eyrnaormum í bland við glænýtt stöff.   Þeir félagar Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen, hafa fyrir löngu skapað sér algera sérstöðu í íslensku menningarlífi með ,,Hundi í óskilum". Ekki er alltaf gott að henda [...]

24. október, 2022|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top