Vaktsími presta: 893-5900
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.
Fréttasafn
Valdís og Petrea
Meðal fyrstu organleikara við Akraneskirkju, voru þær Valdís Böðvarsdóttir og Petrea Sveinsdóttir. Í tímaritinu Hljómlistin þann 1. febrúar 1913 kemur fram, að Valdís hafi starfað sem organleikari í hálft ár árið 1903 og síðan aftur árið 1905. Hún kemur síðan enn að starfinu árið 1909 og saman eru þær Petrea við stýrið á árunum 1910-1912. Petrea var síðan organleikari til ársins 1922. Hún var einnig fyrsti stjórnandi Karlakórsins Svana árið 1915 og stjórnaði honum [...]
Lag dagsins
Hér má heyra Halldór Hallgrímsson syngja ásamt Kór Akraneskirkju. Lagið er eftir Howard Goodall en Halldór þýddi sjálfur textann. Um hljóðfæraleik sjá þau Viðar Guðmundsson á píanó, Kristín Sigurjónsdóttir á fiðlu og Jón Rafnsson strýkur kontrabassann. […]
Unga fólkið að störfum
Þessi mynd var tekin einn góðviðrismorgun í kirkjugarðinum að Görðum. Kraftmikið ungt fólk var að störfum við að hreinsa og slá, undir styrkri stjórn Jóns Guðmundsson. Veðrið lék við vinnufólkið.
Morgunbæn og orð dagsins
Þessa dagana flytur sr. Jónína Ólafsdóttir morgunbænina á Rás 1 kl. 6.45. Þar er blandað saman Guðs orði og sálmum – bæði nýjum og gömlum. Meðal sálmaflytjenda er Kór Akraneskirkju. […]
Sumarnámskeið fermingarbarna
Þessa vikuna hefur verið líf og fjör í Akraneskirkju en mánudaginn 17. ágúst mættu hressir fermingarkrakkar á sumarnámskeið í kirkjunni. Námskeiðið er í umsjón prestanna þriggja, sr. Þráins, sr. Þóru og sr. Jónínu auk starfsfólks kirkjunnar. Við höfum getað notið veðurblíðunnar og lærðum m.a. trúarjátninguna og Faðir vorið úti undir berum himni, fræddumst um kirkjubygginguna og lærðum um Nýja- og Gamla testamentið. Það eru aldeilis hressir og flottir fermingarkrakkar sem ætla að fermast í [...]
Vináttunámskeið
Vináttunámskeið í Akraneskirkju. Hefur barnið þitt einangrast? Við í Akraneskirkju ætlum að bjóða upp á námskeið fyrir 8-10 ára börn dagana 2., 9., 16., 23. og 25. júní. Hver samvera stendur frá 14.30-16.00. Markmiðið er að börnin fái félagsskap í kirkjunni undir handleiðslu starfsfólks. Á dagskrá eru skemmtilegir leikir, útivera og helgistundir.Námskeiðið endar á heimsókn frá KVAN þar sem fjallað verður um vináttu og vináttuþjálfun. Ekkert kostar að taka þátt en takmarkaður fjöldi barna [...]
Skráning í fermingarfræðslu
Skráning í fermingarfræðslu 2020-2021 er hafin. Sendur var bæklingur á öll börn í prestakallinu fædd árið 2007 sem skráð eru í Þjóðkirkjuna. Þrátt fyrir að barnið sé ekki skráð í Þjóðkirkjuna er velkomið að fermast og taka þátt í fermingarfræðslu. Bæklingin má lesa hér Skráningin fer fram hér
Sóknarrölt
Kæru vinir. Við þökkum ykkur innilega fyrir góða þátttöku í Sóknarröltinu okkar. Í gær sóttu hátt í 60 manns göngu, bænastund og hádegissúpu á eftir í Vinaminni. Sérstakar þakkir viljum við færa Hallberu Jóhannesdóttur sem leiddi okkur um sögufrægar slóðir á neðri Skaga, tvo síðustu miðvikudaga. Við tökum svo upp þráðinn í haust þegar bænastundirnar hefjast aftur. Guð blessi ykkur sumarið.
Ævintýranámskeið í Akraneskirkju
Í sumar verður ævintýranámskeið í Akraneskirkju. Ævintýranámskeið er fyrir börn á aldrinum 6 - 9 ára. Námskeiðið verður 29. júní - 3. júlí og er milli kl.8 - 16. Umsjón með námskeiðinu hafa Þóra Björg prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli og Ásta Jóhanna guðfræðinemi. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að starfsfólk taki þátt í dagskránni með börnunum og að dagskráin sé fjölbreytt og spennandi. Í lok námskeiðs fá öll börn verðlaun fyrir eitthvað [...]
Á eftir erfiðleikunum koma alltaf bjartari tímar
Kæru vinir. Við höfum fengið að finna ilm af vori undanfarna daga hér sunnan heiða. Eflaust vorum við mörg farin að bíða óþreyjufull eftir slíkum ilmi. Að heyra fuglasöng og finna ylinn af sólargeislunum sem svo áþreifanlega hjálpa okkur að gleðjast yfir lífinu. Sólargeislunum sem vekja gróðurinn úr dvala svo sætur ilmurinn svífur fyrir vitum okkar og vekur upp minningarbrot. Og um leið kviknar vonin. Vonin um að þetta verði allt í lagi. [...]
Klukkuturninn í Görðum
Fyrsta skólfustungan að klukkuturninum í Görðum, var tekin að kvöldi 3. júlí 1955. Hana tók sr. Jón M. Guðjónsson en hann var frumkvöðull að byggingunni. Í huga sr. Jóns átti hlutverk turnsins að vera það, að geyma klukkur sem hringt væri við greftranir og að þjóna sem minnismerki um kirkjuhald í Görðum allt frá fyrstu öldum. Gerði hann m.a. frumskissur af turninum og lagði fyrir sóknarnefnd. Var samþykkt að ræða þessar framkvæmdir og kom [...]