Vaktsími presta: 893-5900
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.
Fréttasafn
Fermingar í Akraneskirkju 2015
Sunnudaginn 22. mars voru 14 ungmenni fermd í Akraneskirkju. Fermingar verða sunnudagana 29. mars, 12. apríl og 19. apríl. Alls verða fermd 94 börn þetta vorið. Guðni Hannesson ljósmyndari tók þessa mynd af fermingarbörnunum þegar þau gengu til kirkju.
Hallgrímur Pétursson í Akraneskirkju
Þriðjudaginn 24. mars n.k. munu Magnea Tómasdóttir söngkona og Smári Ólason tónlistarfræðingur flytja dagskrá í Akraneskirkju um Hallgrím Pétursson og Passíusálma hans. Kynnt verður 93. prentun Passíusálmanna sem kom út nú í mars þar sem „gömlu lögin“ við þá eru sett út fyrir fjögurra radda blandaðan kór gerðar af Smára auk nýrrar textarannsóknar sem hann hefur gert. Dagskráin hefst kl. 20 og er aðgangur ókeypis!
Kór Akraneskirkju í Hörpu
Þegar sólin sigri nær! Kór Akraneskirkju heldur tónleika í Norðurljósasal Hörpu, föstudaginn 27. febrúar kl. 20. Mikil fjölbreytni einkennir efnisskrána á þessum tónleikum og endurspeglar vel verkefnaval kórsins. Kórinn hélt sjö tónleika á síðasta ári og nú var farið í að velja úr því efni sem flutt var og búa til efnisskrá. Óhætt er að segja að farið verði víða um kórtónlistarflóruna. Ensk og íslensk þjóðlög, sænskir og enskir trúarsöngvar og jazzkórlög Tómasar R. [...]
Kirkjunni afhent rausnarleg gjöf
Guðmundur Þorvaldsson lést fyrir sex árum. Hann hefði orðið fimmtugur 31. janúar sl. ef hann hefði lifað. Í tilefni af þeim tímamótum afhenti ekkja Guðmundar, Ásdís Vala Óskarsdóttir, og synir þeirra Guðmundar, þeir Þorvaldur Arnar og Þorgils Ari, Akraneskirkju að gjöf glæsilega mynd sem Guðmundur saumaði sjálfur út í tómstundum sínum og sýnir Síðustu kvöldmáltíðina. Guðmundur var afkastamikill og vel metinn texíllistamaður. Myndinni verður komið fyrir í safnaðarheimilinu. Akraneskirkja þakkar rausnarlega gjöf og þann [...]
Raggi Bjarna ,,messar" á Akranesi
Þeir þremenningar, séra Eðvarð Ingólfsson, sóknarprestur á Akranesi, Ragnar Bjarnason söngvari og spaugari og Þorgeir Ástvaldsson útvarpsmaður og tónlistarmaður, hafa frá 2007 staðið að árlegri tónlistarguðsþjónustu, sem vakið hafa mikla athygli, í Akraneskirkju. Húsfyllir hefur verið hverju sinni. Í guðsþjónustunum syngur Ragnar þekkt lög við píanóundirleik Þorgeirs en presturinn byggir brú á milli laganna með stuttri hugvekju hverju sinni. „Þetta eru lög um lífið og tilveruna; ástir og ástarsorg, náttúrufegurð, rómantík og sjómennsku, lög [...]
Raggi Bjarna ,,messar" á Akranesi
Þeir þremenningar, séra Eðvarð Ingólfsson, sóknarprestur á Akranesi, Ragnar Bjarnason söngvari og spaugari og Þorgeir Ástvaldsson útvarpsmaður og tónlistarmaður, hafa frá 2007 staðið að árlegri tónlistarguðsþjónustu, sem vakið hafa mikla athygli, í Akraneskirkju. Húsfyllir hefur verið hverju sinni. Í guðsþjónustunum syngur Ragnar þekkt lög við píanóundirleik Þorgeirs en presturinn byggir brú á milli laganna með stuttri hugvekju hverju sinni. „Þetta eru lög um lífið og tilveruna; ástir og ástarsorg, náttúrufegurð, rómantík og sjómennsku, lög [...]
Tónleikum Kórs Akraneskirkju frestað
Vegna óhagstæðrar veðurspár hefur aðventutónleikum Kórs Akraneskirkju sem vera áttu í dag verið frestað, til mánudagsins 1. desember kl. 20:30. Verið velkomin!
Aðventutónleikar Kórs Akraneskirkju
Hátíðlegir tónleikar í upphafi aðventu á Kalmansvöllum, sunnudaginn 30. nóvember kl. 17 Flutt verður hin gullfallega jólaóratoría, Oratorio de Noël eftir franska tónskáldið Camille Saint-Saëns, fyrir kór, einsöngvara og kammersveit. Jólaglögg og piparkökur í hléi. Eftir hlé færir kórinn sig nær nútímanum og flytur aðventu- og jólalög í fjölbreyttum útgáfum. Einsöngvarar: Elfa Margrét Ingvadóttir, Halldór Hallgrímsson, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, Snorri Wium og Þórgunnur Stefánsdóttir. Sérstakir gestasöngvarar verða þau Halla Jónsdóttir og Heiðmar [...]
Góður gestur í opnu húsi
Sl. fimmtudag kom Guðrún Gunnarsdóttir söngkona og skemmti gestum í opnu húsi ásamt Sveini Arnari. Vakti hún mikla lukku enda frábær söngkona og alþýðleg á allan hátt. Meðfylgjandi myndir voru teknar við þetta tækifæri. Guðrún Gunnarsdóttir
Embætti prests í Garðaprestakalli á Akranesi auglýst
Biskup Íslands auglýsir laust til umsóknar embætti prests í Garðaprestakalli á Akranesi, Vesturlandsprófastsdæmi frá 1. janúar 2015. Biskup Íslands skipar í embætti presta til fimm ára. Í Garðaprestakalli er ein sókn, Akranessókn, með tæplega 7000 íbúa og eina kirkju, Akraneskirkju. Garðaprestakall er á samstarfssvæði með Saurbæjarprestakalli. Um þjónustuskyldur í sókninni fer eftir samþykktum kirkjuþings um innri málefni kirkjunnar. Umsækjendur geri skriflega grein fyrir persónulegum upplýsingum, menntun sinni, starfsferli, samskiptahæfileikum og öðru því sem [...]
Fermingarbörn safna handa fátækum í Afríku
Næstkomandi mánudagskvöld, 3. nóvember frá kl. 18 til 20 munu fermingarbörn eins og undanfarin ár, ganga í hús á Akranesi og safna fjármunum til hjálparbágstöddum í Afríku. Söfnun þessi er skipulögð af Hjálparstarfi kirkjunnar og Akraneskirkju. Ungmennin verða með innsiglaða bauka. Þetta framlag fermingarbarnanna er liður í fermingarundirbúningi þeirra. Hér gefst þeim tækifæri til að meðtaka boðskap Krists um náungakærleika á áþreifanlegan hátt – og skynja um leið kraft sinn til þess að breyta [...]
Hátíðarræða flutt í Akraneskirkju 17. júní 2014
Sólveig Rún Samúelsdóttir Sólveig Rún Samúelsdóttir Góðan dag kæru kirkjugestir og gleðilega þjóðhátíð. Í dag eru nákvæmlega 70 ár liðin frá því að lýðveldið Ísland var stofnað á Þingvöllum 1944. Það var engin tilviljun að þessi dagur varð fyrir valinu því aðal baráttumaður sjálfstæðisins, Jón Sigurðsson var fæddur þennan dag árið 1811. Jón var afar snjall og útsjónarsamur maður, hann sá tækifæri til baráttu þegar enginn annar sá það. Hann fór ótroðnar [...]