Vaktsími presta: 893-5900
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.
Fréttasafn
Opið hús – Bingó
Miðvikudaginn 25. september er Opið hús í Vinaminni og verður spilað bingó. Dagskráin hefst kl. 13:15 og lýkur með kaffi og köku. Kyrrðarstund að venju í Akraneskirkju kl. 12:10 og súpa í Vinaminni á eftir. 1000 krónur fyrir súpu og kaffi og bingóspjald Verið velkomin!
Sunnudagur 15. september í Akraneskirkju
Jesús Kristur afmáði dauðann, en leiddi í ljós líf og óforgengileika með fagnaðarerindinu (2.Tím 1. 10b). Sunnudagaskóli kl. 11 Alda Björk leiðir sunnudagaskólann, söngur og sögur, börnin fá límmiða í bókina sína. Við hlökkum til að sjá ykkur í sunnudagaskólanum. Kvöldmessa kl. 20 Hilmar Örn organisti og kórinn syngur ljúfa sálma. Sr Ólöf Margrét þjónar Verið velkomin i endurnærandi samveru í helgarlok. Hjúkrunarheimilið Höfði Guðsþjónusta kl. 17:15
Opið hús í Vinaminni!
Miðvikudaginn 11. september verður fyrsta opna hús vetrarins. Dagskráin hefst kl. 13:15. Að þessu sinni skemmtir Hilmar okkur ásamt góðum söngdívum. Umsjón hefur Ólöf Margrét Snorradóttir Kyrrðarstund að venju í kirkjunni kl. 12:10 og súpa í Vinaminni á eftir. kr. 1000 fyrir súpu.
Fjölskylduguðsþjónusta og sunnudagaskóli
Sunnudaginn 8. september er fjölskylduguðsþjónusta og sunnudagaskóli í Akraneskirkju kl. 11. Tekið verður á móti börnunum með bók og límmiða og sögð biblíusaga. Þráinn Haraldsson og Alda Björk stjórna stundinni, Lenka Meteova spilar á píanó og orgel og Kór Akraneskirkju leiðir söng. Verið öll velkomin á skemmtilega fjölskyldustund í Akraneskirkju
Sunnudagaskólinn hefst 1. september
Velkomin í sunnudagaskólann Sælir eru friðflytjendur! Sunnudagaskólinn hefst næsta sunnudag 1. september kl. 11 og að vanda verður sungið af gleði, sögð biblíusaga og jafnvel sjáum við hvað Nebbi er að bralla. Alda Björk Einarsdóttir, leikskólakennari, hefur umsjón með sunnudagaskólanum í vetur ásamt Jóhönnu Elísu sem spilar á píanóið. Sr Ólöf og sr Þráinn líta líka inn. Við erum friðflytjendur! er yfirskrift sunnudagaskólans í vetur og fá börnin fallega bók og safna í hana [...]
Kvöldmessa í Akraneskirkju sunnudaginn 25. ágúst kl. 20
Sunnudagur 25. ágúst - þrettándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð Kristur segir: Allt sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra það hafið þér gjört mér. Mt 25.40 Kvöldmessa í Akraneskirkju kl. 20. Prestur er sr Solveig Lára Guðmundsdóttir, fyrrum vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal. Kór Akraneskirkju syngur, organisti Hilmar Örn Agnarsson. Verið velkomin til kirkju
Sumarnámskeið fermingarfræðslunar
Sumarnámskeið fermingarfræðslunnar hefst í næstu viku og stendur frá mánudegi til fimmtudags, 19. – 22. ágúst. Börn úr Brekkubæjarskóla og Heiðarskóla mæta kl. 9 – 12 og börn úr Grundaskóla kl. 13 – 16. Námskeiðið verður kennt í Safnaðarheimilinu Vinaminni og biðjum við um að mætt sé fimm mínútum fyrr svo hægt sé að byrja á réttum tíma. Boðið verður upp á ávaxtahressingu yfir daginn. Vinsamlegast tilkynnið veikindi eða önnur forföll á [...]
Sunnudagur 18. ágúst
Kvöldmessa í Akraneskirkju kl. 20 Sr Ólöf Margrét þjónar, organisti Hilmar Örn Agnarsson
Helgistund á sumarkvöldi – 11. ágúst kl. 20 í Akraneskirkju
Sunnudaginn 11. ágúst hefst helgihald að nýju í prestakallinu, kl. 20 í Akraneskirkju. Helgistund á sumarkvöldi! Allir textar lesnir, sumarljóð og sálmar, íhugun og bæn. Sr. Ólöf Margrét leiðir stundina
Skrifstofa Akraneskirkju verður lokuð vegna sumarleyfa dagana 22. júlí til og með 26. júlí
Skrifstofa Akraneskirkju, Kirkjugarðs Akraness og Útfararþjónustu Akraneskirkju verður lokuð vikuna 22. júlí til 26, júlí Ef ykkur vantar prestsþjónustu er bent á vaktsíma presta í númer 893 5900. Ef ykkur vantar aðrar upplýsingar eða útfararþjónustu er vaktsíminn 896 4703. Skrifstofan opnar aftur mánudaginn 29. júlí. frá klukkan 10
Skrifstofan lokuð föstudaginn 5. júlí
Skrifstofa Akraneskirkju, Kirkjugarðs Akraness og Útfararþjónustu Akraneskirkju verður lokuð föstudaginn 5. júlí Ef ykkur vantar prestsþjónustu er bent á vaktsíma presta í númer 893 5900. Ef ykkur vantar aðrar upplýsingar eða útfararþjónustu er vaktsíminn 896 4703.
17. júní í Garða- og Saurbæjarprestakalli
Það verður hátíðarmessa á 17. júní kl. 13 í Akraneskirkju. Séra Þóra Björg þjónar og nýstúdentinn Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir flytur hátíðarræðu. Hilmar Örn Agnarsson er organisti og félagar úr Kór Akraneskirkju leiða söng. Eftir messuna verður Kirkjunefnd Akraneskirkju með sýna árlegu 17. júní kaffisölu í Safnaðarheimilinu Vinaminni frá kl. 14-17. Verð fyrir fullorðna er 3.000 kr Börn 6-13 ára 500 kr 0-5 ára frítt. Það verður posi á staðnum. Verið öll hjartanlega velkomin!