Home2023-01-05T21:45:34+00:00
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna
Vaktsími presta: 893-5900

Hallgrímskirkja í Saurbæ

Leirárkirkja
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Viðburðir framundan
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Engir viðburðir framundanAllt helgihald framundan

Ýmislegt

Engir viðburðir framundan

Fréttasafn

Hátíðarhljómar á gamlársdag í Akraneskirkju

Hátíðartónar hljóma um Akraneskirkju á síðasta degi ársins kl. 16! Hilmar Örn Agnarsson og Jóhann Stefánsson leika á orgel og trompet klassísk hátíðarlög. Ásta Marý Stefánsdóttir og Steinunn Þorvaldsdóttir syngja. Gestablásarar munu einnig taka þátt. Verið velkomin!

28. desember, 2023|

Gleðilega hátíð

„Verið óhræddir, því, sjá, ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Lk 2.10b.11 Guð gefi ykkur gleðileg jól og megi ljós hans lýsa í öllu ykkar lífi. Kærar kveðjur frá sóknarnefndum, starfsfólki og prestum Garða- og Saurbæjarprestakalls. Þá nýfæddur Jesús í jötunni lá á jólunum fyrstu var dýrðlegt að sjá. Þá sveimuðu englar frá himninum hans því hann var [...]

24. desember, 2023|

Hátíðardagskrá um jól og áramót

Aðfangadagur Akraneskirkja Aftansöngur kl. 18. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar. Hilmar Örn Agnarsson leikur á orgel, Kór Akraneskirkju, Benedikt Kristjánsson syngur einsöng og Hrefna Berg leikur á fiðlu. Jólasöngvar Jólanótt kl. 23. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar. Hilmar Örn Agnarsson leikur á orgel, Kór Akraneskirkju og Hekla Karen Alexandersdóttir syngur einsöng. Hallgrímskirkja í Saurbæ Miðnæturmessa kl. 23. Sr. Þráinn Haraldsson þjónar, Zsuzsanna Budai leikur á orgel og Kór Saurbæjarprestakalls syngur. Jóladagur Leirárkirkja Hátíðarguðsþjónusta kl. 13.30. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir [...]

18. desember, 2023|

Jólasöngur í kirkjunni 13. desember kl. 17:30

Syngjum saman jólalögin í Akraneskirkju alla miðvikudaga fram að jólum kl. 17:30 Nú býðst öllum að syngja saman uppáhalds jólalögin við undirleik organistans okkar, Hilmars Arnar. Félagar úr kór Akraneskirkju leiða sönginn. Óvæntir gestir kíkja kannski við. Samverustund fyrir alla fjölskylduna, hægt að koma og fara að vild! Verið velkomin! Jólasöngurinn er miðvikudagana 6., 13. og 20. desember

13. desember, 2023|

Gjöf í líknarsjóð Akraneskirkju

Akraneskirkja starfrækir líknarsjóð sem veitir styrki til þeirra þurfa á aðstoð að halda. Mest er veitt fyrir jólin í formi inneignarkorta í matvöruverslunum. Megnið af fé sjóðsins er gjafafé bæði frá samtökum, fyrirtækjum og einstaklingum. Í dag komu þrír 6 ára drengir á skrifstofu kirkjunnar með ömmu sinni. Þeir höfðu fyrr í haust málað steina og selt og vildu gefa afraksturinn í líknarsjóðinn. Þráinn Haraldsson sóknarprestur tók við gjöfinina, 9.400kr og Akraneskirkja þakkar þeim [...]

7. desember, 2023|

Aðventuhátíð í Hallgrímskirkju í Saurbæ

Við kveikjum tveimur kertum á og komu bíðum hans Annan sunnudag í aðventu, 10. desember kl. 20, höldum við aðventuhátíð í Hallgrímskirkju. Samsöngur og ljós tendruð á aðventukransinum. Gestur kvöldsins, Haraldur Benediktsson bæjarstjóri Akraness, flytur ávarp. Kór Saurbæjarprestakalls syngur, organisti Zsuzsanna Budai. Prestar Garða- og Saurbæjarprestakalls leiða stundina. Verið velkomin! Við kveikjum einu kerti á. Hans koma nálgast fer sem fyrstu jól í jötu lá og Jesúbarnið er. Við kveikjum tveimur kertum á og [...]

7. desember, 2023|

Jólagleði í Vinaminni miðvikudaginn 6. desember kl. 13:15

Miðvikudaginn 6. desember sláum við saman opna húsinu og karlakaffinu og bjóðum til jólagleði í Vinaminni kl. 13:15 Bjarni Atlason og Hilmar organisti halda uppi stemmningunni með söng og glensi. Upplestur, gleði og almennur söngur ásamt heitu súkkulaði og smákökum í upphafi aðventu. Njótum og gleðjumst saman. Minnum á kyrrðarstund í Akraneskirkju á miðvikudögum kl. 12:10 og súpu á eftir í Vinaminni. Kr. 500 fyrir súpu og kaffi

4. desember, 2023|

Jólaball og aðventuhátíð

3. desember verður jólaball og aðventuhátíð í Garða- og Saurbæjarprestakalli. Jólaball sunnudagaskólan verður kl. 11 í Vinaminni. Aðventuhátíðin verður kl. 17 í Akraneskirkju. Þá hlustum við á söng frá Kór Akraneskirkju og Kór Grundaskóla og atriði frá strengjasveitum Tónlistarskólans á Akranesi. Tökum saman á móti aðventunni með ljúfum tónum og jólasögu.

28. nóvember, 2023|

Karlakaffi í Vinaminni 29. nóvember kl. 13:30

Miðvikudaginn 29. nóvember kemur Theodór Freyr Hervarsson, veðurfræðingur, í heimsókn í Karlakaffið. Stundin hefst kl.13:30 og er ætluð fyrir herramennina að koma saman, fræðast og skemmta sér. Kaffi og meðlæti á eftir. Verið velkomnir! Kyrrðarstund í Akraneskirkju alla miðvikudaga kl. 12:10. Tilvalið að taka sér frá amstri hversdagsins og kyrra hugann meðan hlýtt er á tónlist, ritningarorð og bæn. Að stund lokinni er boðið upp á súpu í Vinaminni. Verið velkomin í kyrrðarstund og [...]

27. nóvember, 2023|

Jólamarkaður til styrkar Innra-Hólmskirkju haldinn í Miðgarði um helgina 2. og 3. desember

Laugardaginn 2. og sunnudaginn 3. desember verður haldinn jólamarkaður í Miðgarði Hvalfjarðarsveit frá kl. 13-17 báða dagana. Á markaðnum verður ýmiskonar handverk, sultur, kleinur, broddur, kæfa og kökur. Einnig verður vöfflu og kaffisala á staðnum. Hlökkum til að sjá ykkur.   Athugið ekki posi á staðnum.   Sóknarnefndin

27. nóvember, 2023|

Jólahald í skugga áfalla, sorgar og missis

Jólin eru tími hátíðar og gleði, samverustundir þar sem nýjar minningar verða til, tími sem við gjarnan hlökkum til. Jólin og aðdragandi þeirra getur þó verið erfiður tími, einkum í kjölfar breyttra aðstæðna, til dæmis eftir skilnað, ástvinamissi eða annan missi, svo sem að missa heimili sitt vegna náttúruhamfara. Mánudaginn 27. nóvember kl. 20 bjóðum við til samveru í Akraneskirkju um jólahald í skugga áfalla, sorgar og missis. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina [...]

24. nóvember, 2023|

Sunnudagurinn 26. nóvember

26.nóvember er síðasti sunnudagur kirkjuársins, næsta sunnudag hefst nýtt kirkjuár á 1 sunnudegi í aðventu. Þennan sunnudag er fjölbreytt helgihald í Garða- og Saurbæjarprestakalli að vanda. Í Akraneskirkju er sunnudagaskóli kl. 11. Þar munu Ása og Jóhanna Elísa taka á móti börnunum með söng, leik og biblíusögu. Í Hallgrímskirkju í Saurbæ er guðsþjónusta kl. 11. sr. Þráinn Haraldsson þjónar, Kór Saurbæjarprestakalls leiðir söng undir stjórn Zsuzsönnu Budai organista. Dagurinn endar svo á Kvöldmessu í [...]

24. nóvember, 2023|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top