Home2024-12-10T15:20:05+00:00
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna
Vaktsími presta: 893-5900

Hallgrímskirkja í Saurbæ

Leirárkirkja
Útfarir
Viðburðir framundan
Hjónavígslur
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Allt helgihald framundan

Ýmislegt

Engir viðburðir framundan

Fréttasafn

Fermingar á Hvítasunnudag

Á Hvítasunnudag 19. maí fara fram tvær fermingarmessur í prestakallinu. Í Akraneskirkju er fermt kl. 11. Prestar eru sr. Ólöf Margrét Snorradóttir og sr. Þráinn Haraldsson. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson og Kór Akraneskirkju syngjur. Fermd verða: Albert Hrafn Lúðvíksson Bergur Ernir Karlsson Dagur Óli Ragnarsson Heiðar Breki Héðinsson Heiðdís Tinna Daðadóttir Ingibergur Hjálmarsson Magnús Ingi Sigfússon Patrekur Emil Mýrdal Pétur Geir Gíslason   Fermt verður í Innra-Hólmskirkju kl. 14. Prestur er sr. Ólöf [...]

17. maí, 2024|

Karlakaffi miðvikudaginn 15. maí kl. 13:15

Lokasamvera vetrarins í Karlakaffinu er miðvikudaginn 15. maí. Hefst hún klukkan 13:15. Gestur að þessu sinni er Gísli Harðarson safnari og fræðir hann um ýmislegt varðandi söfnun og jafnvel sölu frímerkja og fleira. Kaffi og spjall í lokin. Verið velkomnir! Kr. 500 fyrir kaffi Kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10 og súpa í Vinaminni á eftir. Kr. 500

14. maí, 2024|

Sunnudagur 12. maí

Leirárkirkja: Vormessa kl. 11. Kór Saurbæjarprestakalls syngur létta og ljúfa sumarsálma. Organisti Zsuzsanna Budai. Prestur Ólöf Margrét Snorradóttir. Kaffisopi eftir messu. Akraneskirkja: Kvöldmessa kl. 20. Kór Akraneskirkju syngur, organisti Hilmar Örn Agnarsson. Prestur Ólöf Margrét Snorradóttir. Líkt og á mæðradaginn undanfarin ár eru konur hvattar til að mæta í þjóðbúning. Verið velkomin til kirkju!

10. maí, 2024|

Vorferð 9. maí!

Á uppstigningardag, 9. maí verður vorferð kirkjustarfsins í Borgarfjörðinn. Lagt af stað klukkan 12 að lokinni guðsþjónustu í Akraneskirkju. Þá er haldið að Hvanneyri þar sem við snæðum súpu, kíkjum kannski í Ullarselið áður en við keyrum hring um Borgarfjörð. Á bakaleiðinni skoðum við Melasveitina og stoppum svo á Laxárbakka. Áætluð heimkoma er 16:30. Þátttökugjald er kr. 5000. Skráning í síma 433 1500 eða hjá olof@akraneskirkja.is

7. maí, 2024|

Uppstigningardagur 9. maí – kirkjudagur aldraðra

Hljómur syngur í messu á uppstigningardag kl. 11 Vorferð kl. 12 Á kirkjudegi aldraðra, uppstigningardag, er guðsþjónusta í Akraneskirkju kl. 11. Hljómur, kór FEBAN, syngur undir stjórn Lárusar Sighvatssonar, organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Prestur er Ólöf Margrét Snorradóttir. Uppstigningardagur er dagur aldraðra í kirkjunni, þá lyftum við upp og minnum á og þökkum það góða starf sem aldraðir sinna í kirkjunni. Komum saman og gleðjumst á þessum degi. Verið velkomin til kirkju! Vorferð [...]

6. maí, 2024|

Vetrarstarfi að ljúka með sumarhátíð og vorferðum

Í vetur hefur farið fram dýrmætt safnaðarstarf í Vinaminni sem opið er öllum í prestakallinu. Barna- og æskulýðsstarf, opið hús og karlakaffi, auk fræðslukvölda og fermingarstarfs. Prestar og annað starfsfólk er þakklátt fyrir samveruna og hlakkar til áframhaldandi starfs næsta vetur. En nú er maímánuður genginn í garð og safnaðarstarfi vetrarins lýkur brátt. Af því tilefni er margt á döfinni hjá okkur, vorferðir og sumarhátíð. Verið velkomin! Sunnudaginn 5. maí kl. 11 er lokahátíð [...]

3. maí, 2024|

Sunnudagurinn 21. apríl

Helgihaldið í Garða- og Saurbæjarprestakalli sunnudaginn 21. apríl er eftirfarandi: Sunnudagaskóli í Akraneskirkju kl. 11. Það verður náttfatapartý í sunnudagaskólanum. Umsjón hafa Aníta Eir Einarsdóttir og Jóhanna Elísa Skúladóttir. Guðsþjónusta í Hallgrímskirkju í Saurbæ kl. 11. Séra Þóra Björg þjónar, Zsuzsanna Budai er organisti og félagar úr Kór Saurbæjarprestakalls leiða söng. Kvöldmessa í Akraneskirkju kl. 20. Séra Þóra Björg þjónar, Hilmar Örn Agnarsson er organisti og félagar úr Kór Akraneskirkju leiða söng.

19. apríl, 2024|

Opið hús í Vinaminni 10. apríl kl. 13:15

Allsherjar heilsu-húsráð og húrrandi fjör Hildur Aðalbjörg Ingadóttir sjúkraþjálfari kemur í heimsókn með heilsuhúsráð fyrir okkur og að sjálfsögðu húrrandi fjör. Sjáumst í opna húsinu í Vinaminni kl. 13:15, miðvikudaginn 10. apríl. Kaffi og sætabrauð í lok stundar. Kr. 500. Kyrrðarstund og súpa í hádeginu Kyrrðarstund er í Akraneskirkju alla miðvikudaga kl. 12:10. Það er hvíld og endurnæring í því að setjast inn í kirkjuna og heyra ljúfa tóna orgelsins, hlýða á ritningarlestur og [...]

9. apríl, 2024|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top