Velkomin í starfið okkar á miðvikudögum!

Kyrrðarstund og súpa – næring fyrir líkama og sál

Alla  miðvikudaga er kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10. Ljúfir orgeltónar, ritningarlestur og bæn einkenna þessar stundir. Í miðri viku er gott að taka frá smá tíma og setjast niður í kirkjunni og kyrra hugann, biðja og njóta tónlistar. Að lokinni samveru er boðið upp á súpu og kaffisopa í Safnaðarheimilinu Vinaminni, ljúft er að setjast niður og næra sig, spjalla og eiga gefandi samveru í góðum félagsskap. Súpa kr. 1.000.

Opið hús  

Opið hús er í Vinaminni  kl. 13:15 tvo miðvikudaga í mánuði .

Áhersla er á samveru og skemmtun, að fræðast og gleðjast saman. Dagskráin er sambland af tónlist, erindum frá góðum gestum og fræðslu og skemmtun að hætti hússins.
Umsjón með starfinu hefur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.

Kaffi og meðlæti í lok hverrar samveru kr. 1.000

Dagskrá vor 2025:

15. janúar
Gunnar Gunnarsson, Skriðuklaustur og bækur – Gunnar Björn Gunnarsson segir frá

29. janúar
Þorragleði – þorramatur, söngur og gamanmál. Skráning í síma 433 1500 / netfang olof @ akraneskirkja.is. Kr. 3000

5. febrúar
Bingó

19. febrúar
Sitt af hvoru tagi – skemmtun og fróðleikur að hætti hússins

12. mars
Heimsókn í Bústaðakirkju – brottför frá Vinaminni kl. 13

26. mars
Ljósmyndasafn Akraness verður með myndasýningu, myndir tengdar kirkjunni og kirkjustarfi

9. apríl
Bingó

23. apríl
Hreyfing og gleði – Hildur Aðalbjörg Ingadóttir sjúkraþjálfi

7. maí
Vorferð – hyggjum á heimsókn á Suðurnesin

21. maí

29. maí
Uppstigningardagur: Guðsþjónusta kl. 14 í Akraneskirkju. Hljómur syngur. Messukaffi í Vinaminni

 

Karlakaffi

Karlakaffi einn miðvikudag í mánuði kl. 13:15
Í karlakaffi fáum við góða gesti í heimsókn sem segja frá starfi sínu, áhugamáli eða miðla öðrum fróðleik. Þetta er vettvangur fyrir herramennina að hittast þar sem er fræðsla og skemmtun og tækifæri til að spjalla.

Kaffi og meðlæti í lok samveru kr. 1.000

Dagskrá vor 2025:

29. janúar
Þorragleði – þorramatur, söngur og gamanmál. Skráning í síma 433 1500 / netfang olof @ akraneskirkja.is. Kr. 2500

26. febrúar
Sitthvað um kirkjugarða – Jóhannes Finnur Halldórsson segir frá

5. mars
Sigurður Már Einarsson fiskifræðingur

2. apríl

30. apríl

28. maí