ÞÞ

ÞÞ2021-05-06T12:59:52+00:00
Loading...
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Engir viðburðir framundan

Ýmislegt

26. ágúst, 2024 - 1. september, 2024

Fréttasafn

Karlar í Karlakaffinu Vinaminni 1. mars kl. 13:30

Gestur í Karlakaffi miðvikudaginn 1. mars er Gunnlaugur A. Jónsson prófessor. Hann á veglegt safn af útskornum styttum og mun hann fjalla um söfnun sína á þeim en þar kennir ýmissa grasa, trúar- og stjórnamálaleiðtogar, tónlistarmenn og jafnvel knattspyrnumenn. Erindið nefnir hannAð skapa í mynd Guðs og manns.. Gunnlaugur er fyrrum prófessor í gamlatestamentisfræðum við Háskóla Íslands. Karlakaffið er í Safnaðarheimilinu Vinaminni og hefst kl. 13:30. Þangað koma góðir gestir í heimsókn sem segja [...]

28. febrúar, 2023|

Sorg og sorgarviðbrögð, fræðslukvöld og stuðningshópur

Næstkomandi mánudagskvöld, 27. febrúar klukkan 20.00 verður fræðslukvöld í Safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi, um sorg og sorgarviðbrögð. Prestar Garða- og Saurbæjarprestakalls halda þar erindi um sorg og áföll og leiða samtal um viðfangsefnið. Í framhaldinu verður boðið upp á stuðningshóp fyrir syrgjendur. „Þetta er nýjung hjá okkur í Garða- og Saurbæjarprestakalli að bjóða upp á fræðslukvöld einu sinni í mánuði og næsta mánudag verðum við með erindi um sorg og sorgarviðbrögð. Þetta erindi er [...]

23. febrúar, 2023|

Lífsins gangur

Hanna Dóra Sturludóttir messósópransöngkona og Snorri Sigfús Birgisson píanóleikari koma fram á næstu tónleikum Kalman listafélags í Vinaminni á Akranesi fimmtudaginn 23. febrúar kl. 20. Á efnisskrá tónleika Hönnu og Snorra eru lög og aríur úr ýmsum áttum. Efnistökin eru lífið; ástir, draumar og söknuður í lífi hvers manns. Titill tónleikanna, "Lífsins gangur" á því vel við enda fengin að láni úr einu ljóðanna. Hanna og Snorri hafa starfað mikið saman á undanförnum árum, [...]

23. febrúar, 2023|

Öskudagsmessa í Hallgrímskirkju í Saurbæ kl. 20

Í Hallgrímskirkju í Saurbæ verður messa klukkan átta að kvöldi Öskudagsins, miðvikudaginn 22.febrúar. Í þessari messu , við upphaf 40 daga föstu allt til páska, er að gömlum sið helguð aska sem vætt er vatni og teiknaður kross á enni þeirra sem það vilja, til að minna á inntak föstutímans, iðrun og yfirbót og einlægni lífs og sálar í eftirfylgdinni við frelsarann Jesú. Krist. Öskudagsmessan er fyrsta föstumessan. Föstumessur Garða- og Saurbæjarprestakalls verða hvert [...]

21. febrúar, 2023|

Opið hús 22. febrúar: kynning á Löngumýri

Opið hús í Vinaminni kl. 13:15 Miðvikudaginn 22. febrúar kemur Þórey Dögg Jónsdóttir í heimsókn í Opna húsið. Þórey er djákni og framkvæmdastjóri Eldriborgararáðs Reykjavíkurprófastsdæma auk þess sem hún stendur fyrir orlofsdvöl fyrir eldri borgara af landinu öllu á Löngumýri í Skagafirði og ætlar hún einmitt að segja okkur frá því starfi jafnframt því að bregða á leik með okkur. Umsjón með opnu húsi hefur sr. Ólöf Margrét Kaffi kr. 500. Bænastund í Akraneskirkju [...]

20. febrúar, 2023|

Sunnudagur 19. febrúar, sunnudagaskóli og guðsþjónustur

Sunnudagurinn 19. febrúar er sunnudagur í föstuinngang en tímabil föstunnar gengur svo í garð á öskudag, 22. febrúar. Tvær guðsþjónustur verða í prestakallinu næsta sunnudag, í Saurbæ og á Akranesi. Hallgrímskirkja í Saurbæ Guðsþjónusta kl. 11, Kór Saurbæjarprestakalls hins forna syngur undir stjórn og undirleik Zsuzsönnu Budai. Meðal annars verða sungnir sálmar eftir Hallgrím Pétursson. Prestur sr. Ólöf Margrét. Akraneskirkja Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjón sunnudagaskólaleiðtoganna Anítu og Jóhönnu. Jesús er ljós heimsins er [...]

15. febrúar, 2023|

Fræðslukvöld í Vinaminni: Bjarni Skúli Ketilsson, mánudagur 13. febrúar kl. 20

Við bjóðum til fræðslu og samverukvölda í Vinaminni í vetur með fjölbreyttum efnistökum. Fyrsta kvöldið er mánudaginn 13. febrúar (athugið breyttan tíma, var áður auglýst 6. febrúar): Myndlistamaðurinn Bjarni Skúli Ketilsson, Baski, segir frá verkum sínum, m.a. endurbótum á kirkjum prestakallsins. Í Vinaminni kl. 20 mánudaginn 13. febrúar! Næstu fræðslukvöld: Mánudaginn 27. febrúar: Samtal um sorg Mánudaginn 20. mars: Guðsþjónustan Mánudaginn 24. apríl: Kristrún í Frón

12. febrúar, 2023|

Sunnudagaskóli og Lionsmessa 12. febrúar

Sunnudaginn 12. febrúar er sunnudagaskóli í Akraneskirkju kl. 11. Saga dagsins er dæmisaga Jesú Krists um týnda soninn. Eftir sunnudagaskólann verður boðið upp á litastund í Vinaminni. Börnin geta litað mynd dagsins og foreldrar fengið sér kaffibolla. Um kvöldið er messa kl. 20 með þáttöku félaga úr Lions. Sr. Kristján Valur Ingólfsson fyrrum vígslubiskup í Skálholti, nú búsettur á Saurbæ og Lionsmaður predikar, félagar úr Lions lesa texta og karlakórinn Svanir syngja undir stjórn [...]

10. febrúar, 2023|

Opið hús 8. febrúar kl. 13:15

Minnum á bænastundina í Akraneskirkju kl. 12:10 og súpu á eftir í Vinaminni. Opið hús í Vinaminni annan hvern miðvikudag kl. 13:15 Miðvikudaginn 8. febrúar stýrir Ólöf Margrét dagskránni, létt spjall, fræðsla og skemmtun. Söngsystur úr tónlistarskólanum koma og syngja nokkur lög. Þær heita Hanna Bergrós, Hekla, Marta Lind og Guðrún Karítas. Verið velkomin í opið hús! Kaffi í opnu húsi kr. 500.

6. febrúar, 2023|

Karlakaffi miðvikudaginn 1. febrúar kl. 13:30

Einar K. Guðfinnsson er gestur okkar í Karlakaffinu nk. miðvikudag í Safnaðarheimilinu Vinaminni. Erindið hefst kl. 13:30. Karlakaffi er að jafnaði fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 13:30-15:00, þangað fáum við góða gesti í heimsókn sem segja frá starfi sínu, áhugamáli eða miðla öðrum fróðleik. Þetta er vettvangur fyrir herramennina að hittast þar sem er fræðsla og skemmtun og tækifæri til að spjalla. Kaffi og meðlæti í lok samveru kr. 500   Næstu samverur: 1. [...]

30. janúar, 2023|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top