ÞÞ

ÞÞ2021-05-06T12:59:52+00:00
Loading...
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Engir viðburðir framundan

Ýmislegt

Engir viðburðir framundan

Fréttasafn

Tónleikar Kórs Akraneskirkju

Fimmtudaginn 16. desember kl. 20:00 mun Kór Akraneskirkju fagna komu jólanna með jólatónleikum í Vinaminni. Lagaval tónleikanna er fjölbreytt og skemmtilegt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Forsala á tónleikana er hafin í versluninni Bjargi. Lausir miðar verða seldir við innganginn. Miðaverð er 4.ooo kr. Takamarkaður sætafjöldi. Tekið skal fram að fylgt verður ítrustu sóttvarnarreglum sem gilda á tónleika degi Hraðpróf: Vegna núgildandi sóttvarnartakmarkanna verða allir tónleikagestir að framvísa neikvæðri niðurstöðu [...]

9. desember, 2021|

Diddú og drengirnir með aðventutólneika í Hallgrímskirkju

Diddú og drengirnir flytja dásamlega aðventutónlist í Hallgrímskirkju í Saurbæ sunnudaginn 5. desember kl. 16:00-17:30. Sigrún Hjálmtýsdóttir ásamt blásarasextett hefur um árabil glatt tónlistarunnendur með tónlistarflutningi á aðventu. Kór Saurbæjarprestakalls undir stjórn Zsuszönnu Budai syngur með í tveimur perlum; Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns og Panis Angelicus eftir Cesar Franck. Aðgangseyrir er kr. 3000.- Tónleikanefndin óskar eftir að gestir framvísi neikvæðu covid-hraðprófi.

1. desember, 2021|

Jólatónleikar Kórs Akraneskirkju

Fimmtudaginn 16. desember kl. 20:00 mun Kór Akraneskirkju fagna komu jólanna með jólatónleikum í Vinaminni. Lagaval tónleikanna er fjölbreytt og skemmtilegt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Forsala á tónleikana verður í versluninni Bjargi og hefst hún 5. desember. Lausir miðar verða seldir við innganginn. Miðaverð er 4.ooo kr. Tekið skal fram að fylgd verður ítrustu sóttvarnarreglum sem í gildi verða á þeim tíma.

27. nóvember, 2021|

Jólamarkaður til styrktar Innra-Hólmskirkju

Jólamarkaður til styrktar Innra-Hólmskirkju verður haldinn í Miðgarði  í Hvalfjarðarsveit laugardaginn 27.  nóvember og sunnudaginn 28.  nóvember frá kl . 13 til 17  báða dagana. á markaðinum verður ýmiskonar handverk, sultur, kleinur, broddur, kæfa og kökur.  Einnig verður vöfflu og kaffisala á staðnum. Við virðum sóttvarnarreglur og erum því með fjöldatakmarkanir og grímuskyldu. Hlökkum til að sjá ykkur. Nefndin. Ath. það er ekki posi á staðnum

26. nóvember, 2021|

Ljós á leiði í Akraneskirkjugarði

Ljós á leiði verða afgreidd í Kirkjugarði Akraness sem hér segir laugardaginn 27 nóvember frá klukkan 11 til 15.30 sunnudaginn 28. nóvember frá klukkan 13 til 15.30 laugardaginn 4. desember frá klukkan 13 til 15.30 Athugið !  Afgreiðslan er í vinnuskúrnum í kirkjugarðinum Verð kr. 8,000 Munum eftir grímunum  Nánari upplýsingar veita Valdimar Þorvaldsson í síma 899 9755 eða netfang: valdith@aknet.is og Ólafur Gr. Ólafsson í síma 844 2362 netfang: oligretar@aknet.is Lionsklúbbur Akraness

22. nóvember, 2021|

ATH kvöldmessa fellur niður í Innra-Hólmskirkju

Vegna smita í samfélaginu höfum við ákveðið að fella niður kvöldmessuna í Innra-Hólmskirkju á sunnudaginn. Þar er erfitt að halda fjarlægð fyrir kórmeðlimi og fyrir kirkjugesti. Við munum þó vera með sunnudagaskóla kl. 10 og guðsþjónustu kl.11 í Akraneskirkju og fjölskyldumessu í Leirárkirkju kl.10.  

13. nóvember, 2021|

Helgihald sunnudaginn 14.nóvember

Helgihald í Garða- og Saurbæjarprestakalli verður eftirfarandi sunnudaginn 14.nóvember Sunnudagaskóli kl. 10 í Akraneskirkju Guðsþjónusta kl. 11 í Akraneskirkju. Séra Ólöf Margrét Snorradóttir mun þjóna í fyrsta skipti í söfnuðinum. Kór Akraneskirkju syngur og Hilmar Örn Agnarsson leikur á orgel. Fjölskyldumessa kl. 11 í Leirárkirkju. Séra Þóra Björg leiðir stundina. Kvöldmessa kl. 20 í Innra-Hólmskirkju. Séra Þóra Björg þjónar, Kór Saurbæjarprestakalls syngur og Zsuzsanna Budai leikur á orgel. Verið hjartanlega velkomin!

12. nóvember, 2021|

Opið hús 10. nóvember fellur niður

Vegna ástandsins í bænum höfum við ákveðið að fella niður opið hús þann 10.nóvember. Við vonumst til að geta haldið áfram með venjulega dagskrá á næstu vikum. Þá er karlakaffi þann 17. nóvember og opið hús 24. nóvember.

9. nóvember, 2021|

Barna- og unglingastarfið með hefðbundnum hætti

Barna- og unglingastarf kirkjunnar verður með hefðbundnum hætti í dag. Það verða ,,fáránleikar" í 6-9 ára og 10-12 ára starfinu og spilafundur í æskulýðsfélaginu. 6-9 ára starfið er kl. 15-16 á mánudögum 10-12 ára starfið er kl. 17-18 á mánudögum Æskulýðsfélagið (8-10.bekkur) er kl. 20:00-21:30 á mánudögum. Allt starfið fer fram í gamla iðnskólanum.

8. nóvember, 2021|

Tilkynning frá Akraneskirkju

Í ljósi mikillar fjölgunar smita á Akranesi hefur verið tekin sú ákvörðun að fella niður sunnudagaskóla og guðsþjónustu sunnudaginn 7. nóvember. Þetta er gert í samræmi við ákvörðun Akraneskaupsstaðar að loka öllu tómstundastarfi um helgina. Á sunnudaginn er Allra heilagra messa og til stóð að minnast látinna. Nú eftir helgi verður staðan tekin á nýjan leik og í kjölfarið ákveðið hvenær við munum halda hátíðarmessu og minnast látinna í Akraneskirkju. Akraneskirkja verður opin á [...]

4. nóvember, 2021|

Skilti afhjúpað við Hallgrímskirkju í Saurbæ

Það var hátíðleg og góð stund þegar Biskup Íslands afhjúpaði nýtt söguskilti við Hallgrímskirkju í Saurbæ í gær. Eftir afhjúpunina var stund í kirkjunni þar sem Kór Saurbæjarprestakalls flutti sálma eftir sr. Hallgrím og Benedikt Kristjánsson tenór flutti kirkjuljóð eftir Jón Leifs.

28. október, 2021|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top