ÞÞ

ÞÞ2021-05-06T12:59:52+00:00
Loading...
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Engir viðburðir framundan

Ýmislegt

Engir viðburðir framundan

Fréttasafn

Sunnudagurinn 26. nóvember

26.nóvember er síðasti sunnudagur kirkjuársins, næsta sunnudag hefst nýtt kirkjuár á 1 sunnudegi í aðventu. Þennan sunnudag er fjölbreytt helgihald í Garða- og Saurbæjarprestakalli að vanda. Í Akraneskirkju er sunnudagaskóli kl. 11. Þar munu Ása og Jóhanna Elísa taka á móti börnunum með söng, leik og biblíusögu. Í Hallgrímskirkju í Saurbæ er guðsþjónusta kl. 11. sr. Þráinn Haraldsson þjónar, Kór Saurbæjarprestakalls leiðir söng undir stjórn Zsuzsönnu Budai organista. Dagurinn endar svo á Kvöldmessu í [...]

24. nóvember, 2023|

Fræðslukvöld í Vinaminni: Jólastressið og aðventan

Mánudaginn 20. nóvember er fræðslukvöld í Vinaminni kl. 20. Aðventan er tími undirbúnings, kyrrðar og íhugunar en um leið er hún oft uppspretta streitu og kvíða. sr. Þráinn Haraldsson fjallar um aðventuna og jólastressið, skoðar birtingarmyndir þess í menninguni í kringum okkur og veltir því upp hvernig aðventan geti verið tími íhugunar og góðra stunda. Við munum einnig skoða hvernig jólasressið birtist í nokkrum þekktum þáttum og bíómyndum og hvernig sé hægt að vinda [...]

20. nóvember, 2023|

Bingó miðvikudaginn 22. nóvember í Opna húsinu

Nú spilum við jólabingó í Vinaminni kl. 13:15 miðvikudaginn 22. nóvember. 500 kr. fyrir spjald og kaffi. Kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10 eins og alla miðvikudaga og dýrindissúpa í Vinaminni á eftir. Starfið á miðvikudögum er opið öllum - verið velkomin! Opið hús er í Vinaminni annan hvern miðvikudag kl. 13:15. Áhersla er á samveru og skemmtun, að fræðast og gleðjast saman. Dagskráin er sambland af tónlist, erindum frá góðum gestum og fræðslu og [...]

20. nóvember, 2023|

Ljósakrossar á leiði í Kirkjugarði Akraness

Eins og áður verður Lionsklúbbur Akraness með útleigu á ljósakrossum í kirkjugarðinum, nú í byrjun aðventunnar.  Við verðum í garðinum á eftirtöldum dögum:  laugardaginn 25.nóvember kl. 11.00.- 15.30.  sunnudaginn 26.nóvember kl. 13.00.- 15.30., og laugardaginn 2.desember kl. 13.00.- 15.30. Við höfum lengi styrkt Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi með tækjagjöfum og munum við að sjálfsögðu halda því áfram.  Í fyrra afhentum við tæki að verðmæti kr. 7.000.000.-sem endaði í kr. 7.500.000.-   sem er færanlegt ómskoðunartæki. [...]

20. nóvember, 2023|

Sunnudagur 19. nóvember: Messa í Leirárkirkju kl. 11 og æðruleysismessa í Akraneskirkju kl. 20

Viltu koma í messu á sunnudaginn? Hefðbundna messu klukkan 11 eða í kvöldmessu kl. 20, eða kannski í sunnudagaskóla? Allt þetta tilheyrir helgihaldi prestakallsins næstkomandi sunnudag 19. nóvember, sem er næstsíðasti sunnudagur kirkjuársins. Guðspjallstexti dagsins er úr Matteusarguðspjalli og hefur meðal annars að geyma þessi huggunarríku orð Jesú: ,,Komið til mín, öll þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld.'' (Matt 11.28).  Komdu og njóttu friðar í kirkjunni og [...]

15. nóvember, 2023|

Svavar Knútur og Kristjana Stefáns með Kalmantónleikum í Vinaminni fimmtudaginn 16. nóvember kl. 20

Hinir söngelsku vinir, Kristjana Stefáns og Svavar Knútur, munu fagna vetri með virktum á Akranesi 16. nóvember næstkomandi á Kalmantónleikum í Vinaminni kl. 20. Það er búið að vera mikið um að vera hjá þeim sitt í hvoru lagi og hafa þau ekki getað haldið tónleika saman í tvö ár, fyrir utan tvenna tónleika í sumar. En nú mega velunnarar þessa músíkalska pars á Akranesi kætast, því Kalman Listafélagi hefur tekist að lokka þau [...]

13. nóvember, 2023|

Opið hús í Vinaminni miðvikudaginn 8. nóvember kl. 13:15

Söngur og spjall ásamt skemmtilegum fróðleik og styrktaræfingum fyrir heilann er þema dagisins í opnu húsi 8. nóvember. Sr. Ólöf leiðir samveruna, Hilmar organisti leikur við hvern sinn fingur og jafnvel á píanóið líka. Verið velkomin! Velkomin í starfið okkar á miðvikudögum! Kyrrðarstund og súpa – næring fyrir líkama og sál Alla  miðvikudaga er kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10. Ljúfir orgeltónar, ritningarlestur og bæn einkenna þessar stundir. Í miðri viku er gott að taka [...]

7. nóvember, 2023|

Allra heilagra messa sunnudaginn 5. nóvember

Sunnudaginn 5. nóvember er Allra heilagra messa í kirkjum landsins. Á þeim degi minnumst við látinna ástvina og heiðrum minningu þeirra sem hafa kvatt okkur síðastliðið ár. Við messu kl. 20 í Akraneskirkju verða lesin nöfn þeirra sem voru jarðsungin í Garða- og Sauarbæjarprestakalli frá Allra heilagra messu árið 2022. Einnig verða tendruð kertaljós til minningar um látna ástvini. Messan er gott tækifæri til að heiðra minningu þeirra sem hafa kvatt okkur og eins [...]

3. nóvember, 2023|

Tónleikar Kalman listfélags í Vinaminni fimmtudaginn 2. nóvember kl. 20. Ástir og drykkja – söngvar og aríur um ástir, örlög og bús

Lilja Guðmundsdóttir sópran, Bjarni Thor Kristinsson bassi og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari koma fram á fyrstu tónleikum haustsins hjá Kalman listafélagi fimmtudaginn 2. nóvember nk. kl. 20. Yfirskrift tónleikanna er ,,Ástir og drykkja - söngvar og aríur um ástir, örlög og bús" en þar flytja þau söngdagskrá sem samanstendur af íslenskum sönglögum og aríum úr óperum sem fjalla annað hvort um drykkju eða ást - nema hvort tveggja sé! Sönglögin eru kokteill af þekktum slögurum og [...]

1. nóvember, 2023|

Karlakaffi miðvikudaginn 1. nóvember kl. 13:30

Karlakaffi Magnús Magnússon, ritstjóri Skessuhorns, mætir í karlakaffi nóvembermánaðar. Hann segir frá ýmsu varðandi blaðaútgáfu og breytingar þar á sl. ár, og ef til vill lumar hann á sögum úr starfinu. Karlakaffið er fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 13:30 þar sem góðir gestir segja frá starfi sínu, áhugamáli, lífsferli eða miðla öðrum fróðleik. Þetta er vettvangur fyrir herramennina að hittast þar sem er fræðsla og skemmtun og tækifæri til að spjalla. Kaffi og meðlæti [...]

30. október, 2023|

Helgihald sunnudaginn 29. október

Hallgrímskirkja í Saurbæ: Sunnudagur 29. október kl. 11:00 Hátíðarmessa Séra Þóra Björg Sigurðardóttir þjónar fyrir altari og séra Kristján Valur Ingólfsson, fyrrverandi bíslubiskup prédikar. Kór Suarbæjarprestakalls hins forna leiðir söng og Margrét Bóasdóttir, sópran, syngur. Organisti er Zsuzsanna Budai. Akraneskirkja Sunnudagaskóli kl. 11. Það má koma í búningum í sunnudagaskólann í tilefni af hrekkjavöku. Bleik messa kl. 20. Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir og Liv Åse Skarstad segja frá sinni reynslu. Sigrún Dóra Jóhannsdóttir verður einsöngvari og [...]

26. október, 2023|

Hallgrímsdagar 27. – 29. október

Það verður fjölbreytt dagskrá á Hallgrímsdögum 27. - 29. október. Föstudagur 27. október kl. 19:30: Stofnfundur Hollvinafélags Hallgrímskirkju. 20:00 Hallgrímsvaka Dr. Torfi K. Stefánsson Hjaltalín: Landssöfnunin og byggingarsaga kirkjunnar sem ekki var reist. Laufey Sigurðardóttir: Partíta í E dúr fyrir einleiksfiðlu eftir J. S. Bach. Þorsteinn Helgason, prófessor emeritus: Bréfaskóli Hallgríms Péturssonar. Aðgangur ókeypis Laugardagur 28. október kl. 17:00 Kórtónleikar - Kammerkór Seltjarnarneskirkju flytur fjölbreytta efnisskrá. Stjórnandi: Friðrik Vignir Stefánsson. Aðgangur ókeypis Sunnudagur 29. október [...]

24. október, 2023|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top