ÞÞ

ÞÞ2021-05-06T12:59:52+00:00
Loading...
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Engir viðburðir framundan

Ýmislegt

Engir viðburðir framundan

Fréttasafn

Sunnudagur 18. febrúar

Fyrsti sunnudagur í föstu ,,Til þess birtist Guðs sonur, að hann skyldi brjóta niður verk djöfulsins” 1. Jóh. 3.8,,Til þess birtist Guðs sonur, að hann skyldi brjóta niður verk djöfulsins” 1. Jóh. 3.8 Nú er fastan  hafin og litur þess tíma í kirkjunni er fjólublár, litur iðrunar og yfirbótar. Langafastan hefst með öskudegi og er hún fjörutíu dagar og lýkur á páskadag. Fastan minnir á þá fjörutíu daga er Jesús fastaði í eyðimörkinni og  mætti sínum [...]

14. febrúar, 2024|

Opið hús miðvikudaginn 7. febrúar

Velkomin í starfið okkar á miðvikudögum! Miðvikudaginn 7. febrúar er opið hús í Vinaminni. Dagskráin hefst kl. 13:15 og verður að hætti hússins. Myndasýningar, létt hugarleikfimi og ýmiss fróðleikur. Láttu sjá þig! Opið hús er í Vinaminni annan hvern miðvikudag kl. 13:15. Áhersla er á samveru og skemmtun, að fræðast og gleðjast saman. Dagskráin er sambland af tónlist, erindum frá góðum gestum og fræðslu og skemmtun að hætti hússins. Kaffi og meðlæti í lok [...]

6. febrúar, 2024|

Þakkir til Kirkjunefndar Akraneskirkju og kvenfélaga Hvalfjarðarsveitar

1. febrúar er dagur kvenfélagskonunnar en kvenfélög víða um land sinna óeigingjörnu starfi í þágu samfélagsins sem vert er að minnast og þakka. Söfnuðir prestakallsins njóta ekki síður mikilvægs framlags kvenfélaga og viljum við þakka það sérstaklega. Má þar nefna stuðning við framkvæmdir eða kaupa á sálmabókum eða öðru sem nýtist í kirkjulegu starfi. Við Akraneskirkju starfar kvenfélag sem heitir Kirkjunefnd Akraneskirkju. Konurnar er nefndinni hafa verið ötular við að safna fé í gegnum [...]

1. febrúar, 2024|

Karlakaffi miðvikudaginn 31. janúar kl. 13:15

Jón Þórir Guðmundsson garðyrkjufræðingur er gestur Karlakaffisins nk. miðvikudag kl. 13:15. Hann gefur okkur innsýn í starf sitt og áhugamál. Verið velkomnir! Í karlakaffi fáum við góða gesti í heimsókn sem segja frá starfi sínu, áhugamáli eða miðla öðrum fróðleik. Þetta er vettvangur fyrir herramennina að hittast þar sem er fræðsla og skemmtun og tækifæri til að spjalla. Kaffi og meðlæti í lok samveru kr. 500

29. janúar, 2024|

Helgihald sunnudaginn 28. janúar

Sunnudagurinn 28. janúar ber yfirskriftina Laun og náð er fyrsti sunnudagur í níuviknaföstu. Tvær messur ásamt sunnudagaskóla verður í prestakallinu. Leirárkirkja Guðsþjónusta kl. 11. Kór Saurbæjarprestakalls syngur, organisti Zsuzsanna Budai, sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar. Meðhjálpari Kolbrún Sigurðardóttir. Akraneskirkja Sunnudagaskóli kl. 11 Kvöldmessa kl. 20, messuferð frímúrara. Bræður úr frímúrarastúkunni Akri munu aðstoða í messunni, Kór Akursbræðra syngur, organisti Hilmar Örn Agnarsson. Prestur Ólöf Margrét Snorradóttir. Kaffisopi í Vinaminni á eftir Verið velkomin til [...]

25. janúar, 2024|

Vetrargleði í Opnu húsi 24. janúar kl. 13:15

Lyftum okkur upp í vetrarskammdeginu! Miðvikudaginn 24. janúar höldum við vetrargleði í Opna húsinu með þorramat, söng og skemmtun. Dagskráin hefst kl. 13:15, sr. Ólöf Margrét hefur umsjón með samverunni, Steini Hákonar og Hilmar Örn organisti halda uppi stemmningu með söng og jafnvel sögum. Skráning í síma 433 1500 fyrir þriðjudaginn 23. janúar, verð fyrir matinn er kr. 2500 (ath. misritun varð í auglýsingu í Skessuhorni). Verið velkomin! Kyrrðarstund verður í Akraneskirkju kl. 12:10 [...]

19. janúar, 2024|

Fræðslukvöld í Akraneskirkju: Persónur í Biblíunni

Mánudaginn 22. janúar í Akraneskirkju kl. 20 Hvað hétu lærisveinarnir? Hvað gerði Móse? Hverjar voru Sifra og Púa? Langar þig að vita meira  um þær persónur sem koma fyrir í Bibliunni, hver saga þeirra er, hvað þær kenna okkur? Þá er fræðslukvöld í Akraneskirkju fyrir þig! Síðastliðinn vetur hófust fræðslukvöld á mánudegi, eitt kvöld í mánuði þar sem flutt voru erindi um ákveðið efni tengt kirkjunni og kristinni trú. Við höfum haldið áfram með [...]

19. janúar, 2024|

Sunnudagur 21. janúar

Sunnudaginn 21. janúar er sunnudagaskóli í Akraneskirkju kl. 11. Jóhanna Elísa og Þráinn taka á móti börnunum, við syngjum saman og heyrum söguna um mennina sem byggðu hús sitt á bjargi og sandi. Kvöldguðsþjónusta er svo í kirkjuni kl. 20. Þar verður róleg kvöldstemning, fallegir sálmar, altarisganga og við hugleiðum Guðs orð. sr. Þráinn Haraldsson þjónar og Hilmar Örn Agnarsson leikur á orgel. Félagar úr Kór Akraneskirkju syngja.

19. janúar, 2024|

Opið hús í Vinaminni 10. janúar – af sögum og bókum

Miðvikudaginn 10. janúar er fyrsta Opna hús ársins. Gestur að þessu sinni er Sigríður Halldóra Gunnars Ásthildardóttir, upplýsingafræðingur og bókaunnandi. Hún segir frá uppáhaldsbókum sínum og les valda kafla. Hún er einnig deildarstjóri Bókasafns Akraness og kynnir okkur leyndardóma bókasafna. Hefurðu gaman af bókum? Af sögum? Finnst þér gaman að lesa eða hlusta á upplestur? Viltu vita hvað bókasafnið býður upp á? Fyrir utan að hafa fjölda bókatitla til útleigu er margt um að [...]

8. janúar, 2024|

Nýárstónleikar!

Kór Akraneskirkju syngur á Nýárstónleikum í Bíóhöllinni, miðvikudaginn 3. janúar kl. 20. Óskar Pétursson, Björg Þórhallsdóttir og Hanna Þóra Guðbrandsdóttir koma fram, ásamt hljóðfæraleikurum. Konsertmeistari er Sigrún Eðvaldsdóttir. Stjórnandi Hilmar Örn Agnarsson. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Kalmans Listafélags, Bíóhallarinnar og Kórs Akraneskirkju. Á efnisskrá eru Vínartónlist og þekktar óperuaríur. Miðasala í Versluninni Bjargi og á Tix. Miðaverð kr. 7500 Athugið að vegna forfalla hleypur Óskar Pétursson í skarðið fyrir Kristján Jóhannsson.

2. janúar, 2024|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top