útfarir temp

Forsíða/útfarir temp
útfarir temp2021-03-25T08:34:43+00:00
Loading...
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Engir viðburðir framundan

Ýmislegt

Engir viðburðir framundan

Fréttasafn

Fermingar 22. og 23. maí

Fermingar verða í Akraneskirkju um komandi helgi. Laugardaginn 22. maí fermast: Elísa Nótt Ingadóttir Guðný Óladóttir Marta María Baldursdóttir Ólafur Isaac Baldursson Telma Rut Birgisdóttir Sunnudaginn 23. maí fermast: Arna Karen Gísladóttir Kristían Mar Kjaran Kristinn Daði Lúðvíksson Lilja Petrea Líndal Aradóttir Logi Daðason Tindri Steinn Volden Tómas Freyr Garðarsson

18. maí, 2021|

Skráning í fermingarfræðslu

Í dag, 10.maí, hefst skráning í fermingarfræðslu og val á fermingardögum fyrir vorið 2022. Hér til vinstri á síðunni er flipi sem kallast ,,skráningar" og þar undir er ,,fermingarfræðsla". Þar eru fermingarbörnin skráð. Hér fyrir neðan er hægt að skoða bæklinginn. fermingarbæklingur 2021 - lokaútgáfa Garda-og saurbaejar

10. maí, 2021|

Hlaupamessa í Akraneskirkju 9.maí

Lagt verður af stað frá Akraneskirkju kl. 11. Hlaupinn verður 5 km hringur um Akranes og endað í Vinaminni. Gulla Sverris og hlaupafélagar leiða hlaupið. Við vinaminni verður helgistund þar sem félagar úr Kór Akraneskirkju leiða söng og að lokum er boðið upp á hressingu. Öll þau sem vilja taka þátt en treysta sér ekki í hlaupið eru hjartanlega velkomin í Vinaminni upp úr kl. 11.30. Sjáumst!

5. maí, 2021|

Íhugun og útivera. Sunnudaginn 3. maí er ganga frá Hallgrímskirkju í Saurbæ kl 11. Gangan er auðveld og við allra hæfi, stoppað verður á nokkrum stöðum og atburðir páskanna íhugaðir. Hvernig væri að njóta íslenskrar náttúru og leiða hugan að kraftaverki páskanna?

30. apríl, 2021|

Aðalsafnaðarfundur 2021

Aðalsafnaðarfundur Akranessóknar verður haldin mánudaginn 26. apríl kl. 17.30. Vegna samkomutakmarkanna verður safnaðarsal Vinaminnis skipt í tvö sóttvarnarhólf, hægt er að ganga inn í safnaðarheimilið bæði að framanverður og að aftanverður og er þá gengið inn í sitthvort hólfið. Starfsfólk tekur á móti gestum og vísar fólki í rétt hólf. Ekki verður boðið upp á veitingar líkt og gert hefur verið undanfarin ár. Atkvæðisrétt hafa allir íbúar í Akranessókn sem skráðir eru í Þjóðkirkjuna. [...]

15. apríl, 2021|

Fólkið í kirkjunni: Engin uppgjöf

Mörg sem hafa vakandi auga með kirkju og kristni og hugsa um kirkjuhúsin, hafa ekki hátt um það en varðstaða þeirra er ómetanleg. Ragnheiður Guðmundsdóttir er kirkjukona. Hógvær kona og yfir henni er rósemd og öryggi. Kona sem lætur ekki margt koma sér úr jafnvægi. Bjartsýn kona en þó raunsæ.

15. apríl, 2021|

Myndlistarsýning í Hallgrímskirkju í Saurbæ – Hinar fjórtán stöðvar krossferilsins

Hinar fjórtan stöðvar krossferilsins í myndum Önnu G Torfadóttur eru á sýningu í Hallgrímskirkju í Saurbæ ásamt kross- og upprisumyndum Gunnars J. Straumland. Fjórtán krossferilsmyndir í einni samræmdri myndröð eru með elstu viðfangsefnum kirkjulistarinnar. Slíkar myndaraðir gefur að líta  í nær öllum rómversk-kaþólskum kirkjum og kapellum í margskonar útfærslum. Sameiginlegt með þeim öllum er að þær sýna í raunsæismyndum eða með táknmáli áfangastaði og atvik á píslargöngu Krists.  Þessi myndaröð Önnu er unnin í [...]

3. apríl, 2021|

Stabat Mater – Upptaka frá 1967

Í meðfylgjandi myndskeiði má hlýða á kvenraddir Kirkjukórs Akraness flytja Stabat Mater eftir Giovanni Battista Pergolesi. Upptakan var gerð í sjónvarpssal árið 1967. Stjórnandi er Haukur Guðlaugsson en hann var organisti við Akraneskirkju á þessum tíma og lagði mikin metnað í starf sitt. Hljóðfæraleikarar í þessari upptöku eru þau Guðný Guðmundsdóttir, Helga Hauksdóttir, Sturla Tryggvaon, Páll Einarsson og Fríða Lárusdóttir. Einsöng syngja þær Sigurveig Hjaltested alt og Guðrún Tómasdóttir sópran. Lesarar eru Hjálmar Thorsteinsson [...]

2. apríl, 2021|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top