útfarir temp

Forsíða/útfarir temp
útfarir temp2021-03-25T08:34:43+00:00
Loading...
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Engir viðburðir framundan

Ýmislegt

Engir viðburðir framundan

Fréttasafn

Helgistund á RÚV á föstudaginn langa

Á föstudaginn langa kl. 17, verður sjónvarpað frá helgistund sem að mestu er tekin upp í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Biskup Íslands, séra Agnes M. Sigurðardóttir, sér um stundina. Sr. Þóra Björg Sigurðardóttir flytur hugvekju. Benedikt Kristjánsson, tenór syngur, Zsuzsanna Budai leikur á píanó. Aðrir tónlistarflytjendur eru Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, Davíð Sigurgeirsson og Kammerkór Akraneskirkju undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar.  

1. apríl, 2021|

Helgihald um páskana

Í ljósi nýrra sóttvarnarreglna er ljóst að auglýst dagskrá í prestakallinu um kyrruviku og páska tekur miklum breytingum. Ekki verður opið helgihald þessa daga en við munum birta á facebook síðu prestakallsins og hér á heimasíðunni helgistundir, bæði á skírdag og páskadag. Á föstudaginn langa er helgistund á RÚV í umsjón biskups Íslands. Sú helgistund er tekin upp í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Kammerkór Akraneskirkju syngur og sr. Þóra Björg Sigurðardóttir flytur hugvekju ásamt fleirum. [...]

28. mars, 2021|

Fjölskyldustund á æskulýðsdaginn

Það var góð stund í Vinaminni á æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar. Sr. Þráinn Haraldsson leiddi samkomuna og Heiðmar Eyjólfsson söng tvö lög af sinni alkunnu snilld. Heiðmar rifjaði upp fermingardaginn og svo sýndi Þráinn gamlar fermingarmyndar af starfsfólki kirkjunnar. Þær hafa elst mjög misjafnlega og ekki virtust allir í stuði þegar þær voru teknar... en fermdust þó!  

9. mars, 2021|

Fermingardagar 2022

Nú hafa fermingardagar vorsins 2022 verið ákveðnir. Að þessu sinni bjóðum við upp á þá nýbreytni að fermt verður einn laugardag. Fermingarathafnir í Akraneskirkju eru: Sunnudagur 27. mars kl. 10.30 og 13.30 Sunnudagar 3. apríl kl. 10.30 og 13.30 Laugardagur 9. apríl kl. 10.30 Sunnudagur 10. apríl (Pálmasunudagur) kl. 10.30 og 13.30 Fermingardagar í Hallgrímskirkju í Saurbæ, Innra-Hólmskirkju og Leirárkirkju verða ákveðnir síðar, þegar ljóst er hversu mörg börn hyggjast fermast í þessum kirkjum. [...]

8. mars, 2021|

Fjólublár litur föstunnar

Fjólublár litur prýðir altari Akraneskirkju á þessum tíma kirkjuársins. Fastan er hafin og er fjólublái liturinn, litur umhugsunar, hryggðar og iðrunar. Fjólublái liturinn er einnig litur þriggja sunnudaga aðventunnar. Litir kirkjuársins eru tjáning án orða, hljóð áminning til okkar og vitnisburður um söguna mestu og bestu, inngrip Guðs sjálfs í mannheima.  

24. febrúar, 2021|

Sunnudagurinn 28.febrúar í Garða- og Saurbæjarprestakalli

Á sunnudaginn verður mikið um að vera í Garða- og Saurbæjarprestakalli. Það verður messa kl. 11 í Hallgrímskirkju í Saurbæ þar sem sr. Kristján Valur Ingólfsson prédikar og sr. Þóra Björg Sigurðardóttir þjónar. Zsuzsanna Budai er organisti og Kór Saurbæjarprestakalls leiðir söng. Benedikt Kristjánsson syngur einsöng. Sunnudagaskóli í Akraneskirkju kl. 11. Matthías Guðmundsson leiðir stundina og Sveinn Arnar Sæmundsson leikur á píanó. Tónlistarguðsþjónusta kl. 20 í Akraneskirkju. Ljúfir tónar, hugleiðing og ritningarlestrar. Séra Þóra [...]

24. febrúar, 2021|

Messa í Akraneskirkju 14. febrúar

Messa verður í Akraneskirkju 14. febrúar kl. 11:00. Séra Þóra Björg Sigurðardóttir þjónar. Sveinn Arnar Sæmundsson leikur á orgel og félagar úr Kór Akraneskirkju leiða söng. Við biðjum fólk að skrá sig til þátttöku í messunni. Hægt er að senda tölvupóst á thora@akraneskirkja.is eða hringja í s. 433-1500. Minnum á grímuskyldu.

10. febrúar, 2021|

Helgistund sunnudaginn 7. febrúar í Akraneskirkju

Helgistund verður sunnudaginn 7. febrúar í Akraneskirkju kl. 11:00. Sr. Þóra Björg Sigurðardóttir þjónar og Sveinn Arnar Sæmundsson leikur á orgel. Vegna fjöldatakmarkana biðjum við fólk að skrá sig til þátttöku. Hægt er að senda tölvupóst á thora@akraneskirkja.is eða hringja í s. 433-1500. Minnum á grímuskyldu.

3. febrúar, 2021|

Fallegur flutningur Halldórs Hallgrímssonar

Hér má hlýða á Halldór Hallgrímsson flytja eigin texta, Minn bátur,  við lag eftir norska söngvarann Björn Eidsvåg. Lagið var flutt í helgistund sem birt var á allar heilagra messu á síðasta ári. Með Halldóri spila þeir Daníel Friðjónsson á kassatrommu, Ingþór Bergmann Þórhallsson á bassa, Sveinn Arnar Sæmundsson á orgel og sjálfur leikur Halldór á gítar. Það var Ingþór Bergmann sem sá um hljóð- og myndvinnslu.

1. febrúar, 2021|

Séra Jónína tekur við starfi sóknarprests í Hafnarfjarðarprestakalli

Kjörnefnd Hafnarfjarðarprestakalls í Kjalarnessprófastsdæmi valdi Sr. Jónínu Ólafsdóttur, prest á Akranesi, sem nýjan sóknarprest í Hafnarfjarðarprestakalli. Hún mun taka til starfa þar þann 1. mars nk.

29. janúar, 2021|

Barnastarfið hefst á ný!

Barnastarfið hefst á ný þriðjudaginn 26. janúar. Dagskrá fyrir starfið má skoða hér á  heimasíðunni. Það kostar ekkert að vera með og skráning fer fram hér. Starfið er í Gamla Iðnskólanum (Skólabraut 9) og er á eftirfarandi tímum: 6-9 ára starf á þriðjudögum kl.15-16. 10-12 ára starf á þriðjudögum kl.16-17. Æskulýðsfélag (8.-10.bekkur) mánudögum kl. 20:00-21:30.  

25. janúar, 2021|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top