útfarir temp

Forsíða/útfarir temp
útfarir temp2021-03-25T08:34:43+00:00
Loading...
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Engir viðburðir framundan

Ýmislegt

26. ágúst, 2024 - 1. september, 2024

Fréttasafn

Ævintýranámskeið í Akraneskirkju

Í sumar verður ævintýranámskeið í Akraneskirkju. Ævintýranámskeið er fyrir börn á aldrinum 6 - 9 ára. Námskeiðið verður 29. júní - 3. júlí og er milli kl.8 - 16. Umsjón með námskeiðinu hafa Þóra Björg prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli og Ásta Jóhanna guðfræðinemi. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að starfsfólk taki þátt í dagskránni með börnunum og að dagskráin sé fjölbreytt og spennandi. Í lok námskeiðs fá öll börn verðlaun fyrir eitthvað [...]

20. maí, 2020|

Á eftir erfiðleikunum koma alltaf bjartari tímar

Kæru vinir. Við höfum fengið að finna ilm af vori undanfarna daga hér sunnan heiða. Eflaust vorum við mörg farin að bíða óþreyjufull eftir slíkum ilmi. Að heyra fuglasöng og finna ylinn af sólargeislunum sem svo áþreifanlega hjálpa okkur að gleðjast yfir lífinu. Sólargeislunum sem vekja gróðurinn úr dvala svo sætur ilmurinn svífur fyrir vitum okkar og vekur upp minningarbrot. Og um leið kviknar vonin. Vonin um að þetta verði allt í lagi. [...]

10. maí, 2020|

Klukkuturninn í Görðum

Fyrsta skólfustungan að klukkuturninum í Görðum, var tekin að kvöldi 3. júlí 1955. Hana tók sr. Jón M. Guðjónsson en hann var frumkvöðull að byggingunni.  Í huga sr. Jóns átti hlutverk turnsins að vera það, að geyma klukkur sem hringt væri við greftranir og að þjóna sem minnismerki um kirkjuhald í Görðum allt frá fyrstu öldum. Gerði hann m.a. frumskissur af turninum og lagði fyrir sóknarnefnd.  Var samþykkt að ræða þessar framkvæmdir og kom [...]

24. apríl, 2020|

Sigurhátíð sæl og blíð

Helgistund frá Akraneskirkju verður streymt á páskadag kl. 11. Sr. Þráinn Haraldsson og sr. Þóra Björg Sigurðardóttir leiða stundina. Félagar úr Kór Akraneskirkju syngja og organisti er Sveinn Arnar Sæmundsson. Í meðfylgjandi hlekk hér að neðan, má hlýða á stundina sem Heiðar Mar Björnsson tók upp fyrir Akraneskirkju. Gleðilega páska! Páskahelgistund

14. apríl, 2020|

Heimahelgistund á Pálmasunnudag 2020

Nú í samkomubanni bryddum við upp á þeirri nýjung að bjóða upp á einfalt form af heimahelgistund. Stundin tekur um það bil 10-15 mínútur. Hægt er að lesa 1-3 ritningarlestra, biðja bænir, hlýða á predikun eða sögu fyrir börnin á youtube og sömuleiðis er hægt að hlusta á Kór Akraneskirkju syngja tvo sálma. Hvetjum sem flesta til að kynna sér formið og reyna heimahelgistund þegar ekki er hægt að koma til kirkju. Pálmasunnudagur2020

3. apríl, 2020|

Nýir prestar mæta til starfa

sr. Þóra Björg Sigurðardóttirsr. Jónína Ólafsdóttir Sr. Jónína Ólafsdóttir og sr. Þóra Björg Sigurðurdóttir sem voru valdar til þjónustu við Garða og Saurbæjarprestakall í byrjun mars áttu sinn fyrsta vinnudag í dag, 1. apríl. Þá eru prestarnir orðnir þrír en sr. Þráinn Haraldsson er sóknarprestur. […]

1. apríl, 2020|

Að trúa og vona

Bænin má aldrei bresta þig,búin er freisting ýmislig.Þá líf og sál er lúð og þjáð,lykill er hún að Drottins náð. Þannig skrifar Hallgrímur Pétursson í fjórða Passíusálmi. Þetta er eitt af síðustu versum sálmsins og hefur lifað með Íslendingum í gegnum aldirnar. Sálmurinn fjallar um samtal Krists við lærisveinanna, áður en þeir halda í Getsemane garðinn þar sem Jesús var tekinn höndum. Lokaversins eru túlkun Hallgríms á samtalinu, áminning um það sem máli skipti, [...]

25. mars, 2020|

Fyrirkomulag útfara í samkomubanni

Nú er samkomubann á Íslandi. Kirkjulegar athafnir eru meðal þess sem bannið nær til. Útfarir mega því aðeins fara fram með ákveðnum skilyrðum. Annars vegar felast þau í því að fjöldi viðstaddra er takmarkaður en hins vegar verða að vera tveir metrar hið minnsta á milli kirkjugesta. […]

19. mars, 2020|

Fermingar haustið 2020

Vegna samkomubanns verða ekki vorfermingar við Akraneskirkju. Áður en til samkomubanns kom hafði fermingum vorsins verið frestar fram í september. Haustið 2020 verður því fermt eftirtalda daga: 6. september kl. 10.30 13. september kl. 10.30 og 13.30 20. september kl. 10.30 og 13.30 27. september kl. 10.30 og 13.30 Vegna aðstæðna eru einnig nokkur börn sem verða fermd við messu í vor og sumar.

19. mars, 2020|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top