útfarir temp

Forsíða/útfarir temp
útfarir temp2021-03-25T08:34:43+00:00
Loading...
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Engir viðburðir framundan

Ýmislegt

26. ágúst, 2024 - 1. september, 2024

Fréttasafn

Orgelsaga

Fyrsta orgelið sem kom í kirkju á Akranesi var harmonium og var staðsett í Garðakirkju. Kom það árið 1880. Árið 1902 var keypt harmonium orgel í Akraneskirkju og var það úr dánarbúi barónsins frá Hvítárvöllum. Hið eldra var selt. Orgelið sem hér sést, kom í kirkjuna árið 1920 og þjónaði til ársins 1960.Var það fengið með frjálsum samskotum safnaðarfólks.Það er nú vistað í Byggðasafninu að Görðum.

9. mars, 2020|

Fermingar 2021

Vegna samkomubanns verða ekki vorfermingar við Akraneskirkju. Áður en til samkomubanns kom hafði fermingum vorsins verið frestar fram í september. Haustið 2020 verður því fermt eftirtalda daga: 6. september kl. 10.30 13. september kl. 10.30 og 13.30 20. september kl. 10.30 og 13.30 27. september kl. 10.30 og 13.30 Vegna aðstæðna eru einnig nokkur börn sem verða fermd við messu í vor og sumar.

26. febrúar, 2020|

Nýkjörnir prestar

Séra Jónína Ólafsdóttir og Þóra Björg Sigurðardóttir eru nýkjörnir prestar við Garða- og Saurbæjarprestakall. Sr. Jónína Ólafsdóttir var kjörin í almennt preststarf en Þóra Björg Sigurðardóttir í preststarf með áherslu á barna- og æskulýðsstarf. Sjá nánar hér...

21. febrúar, 2020|

Gestrisni, glaðværð og gefandi samtöl

Vísitasíu biskups Íslands, sr. Agnesar M. Sigurðardóttur, um Garða- og Saurbæjarprestakalla lauk á mánudaginn. „Vísatasían var mjög ánægjuleg og fróðleg,“ sagði sr. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup, þegar kirkjan.is innti hana eftir því hvernig hefði gengið, og biskup bætti við: „og ákaflega vel heppnuð og móttökur frábærar.“ Nánar má lesa um heimsóknina hér fyrir neðan. Gefandi samtal… Gestrisni og glaðværð…

8. febrúar, 2020|

Anna Kristjánsdóttir ráðin skrifstofustjóri Akraneskirkju

Gengið hefur verið frá ráðningu Önnu Kristjánsdóttur í starf skrifstofustjóra hjá Akraneskirkju sem auglýst var í lok nóvember. Alls sóttu 27 um starfið en fengin var óháð ráðgjöf frá Capacent við matsferlið og umsjón með ráðningarferlinu. Var það niðurstaða sóknarnefndar að loknu matsferli að Anna væri hæfust umsækjenda. Anna Kristjánsdóttir hefur mikla reynslu af bókhaldi og hefur undanfarin ár unnið hjá Speli, bæði sem aðalbókari og síðasta ár sem framkvæmdastjóri. Hún hefur einnig mikla [...]

17. desember, 2019|

Sr. Þráinn Haraldsson kjörinn sóknarprestur

Kjörnefnd Garða- og Hvalfjarðarstrandarprestakalls hefur valið sr. Þráin Haraldsson sem sóknarprest úr hópi umsækjenda um prestakallið. Sr. Þráinn hefur verið starfandi prestur við Garðaprestakall á Akranesi frá árinu 2015 og settur sóknarprestur þar frá því í desember í fyrra og sömuleiðis í hið nýja prestakall, Garða-og Hvalfjarðarstrandarprestakall, frá því í vor. Sr. Þráinn er fæddur 29. maí 1984 og lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík árið 2004; sama ár lauk hann 6. stigi í [...]

30. ágúst, 2019|

Fermingarfræðsla 2019 – 2020

Fermingarfræðslan í Akraneskirkju hefst í ágúst 2019 með sumarnámskeiði. Öll ungmenni fædd 2006 sem skráð eru í Þjóðkirkjuna fá bréf á næstu dögum með upplýsingum um skráningu í fermingarfræðsluna. Akraneskirkja býður þeim og foreldrum þeirra til kynningarfundar þriðjudaginn 7. maí kl. 18. Við hlökkum til að sjá flest af fermingarbörnum komandi vetrar. Fékkstu ekki bréf? Hægt er að lesa bréfið hér. 

30. apríl, 2019|

Fermingum lokið

Um helgina lauk fermingarathöfnum frá Akraneskirkju. Fermd voru rúmlega 90 ungmenni og voru athafnirnar sjö talsins. Þetta voru fallegar stundir sem sr. Þráinn Haraldsson og sr. Jón Ragnarsson höfðu umsjón með ásamt Helgu Sesselju Ásgeirsdóttur kirkjuverði.  Kór Akraneskirkju söng undir sjórn Sveins Arnars organista. Forsöngvarar voru kórfélagarnir Halldór Hallgrímsson og Ingþór Bergmann Þórhallsson. Kristín Sigurjónsdóttir lék á fiðlu en hún er einnig félagi í kórnum.  

17. apríl, 2019|

Opið hús

Miðvikudaginn 10. apríl kl. 13.30 verður opið hús fyrir eldri borgara. Að venju verður spilað bingó en eftir kaffi og spjall mun Halldór Hallgrímsson mæta svæðið. Halldór er söngmaður góður og ekki síðri sögumaður og það má því búast við góðri skemmtun í Vinaminni. 

13. apríl, 2019|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top