útfarir temp

Forsíða/útfarir temp
útfarir temp2021-03-25T08:34:43+00:00
Loading...
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Engir viðburðir framundan

Ýmislegt

26. ágúst, 2024 - 1. september, 2024

Fréttasafn

Guðsþjónusta í Akranesvita

Sunnudaginn 28. febrúar var haldin guðsþjónusta í Akranesvita. Sr. Þráinn Haraldsson þjónaði. Guðsþjónustan mun vera sú fyrsta sem haldin er í vitanum og var hún vel sótt. Þetta var fyrsti dagskrárliðurinn í Kirkjuviku sem Akraneskirkja stendur fyrir. Sjá nánar hér á síðunni . Einnig er Akraneskirkja með síðu á facebook en þar er hægt að fylgjast enn betur með ákveðnum viðburðum.

29. febrúar, 2016|

Hátíðarnótt í Vinaminni

Andrés Þór Gunnlaugsson gítarleikari, Karl Olgeirsson píanóleikari og Jón Rafnsson kontrabassaleikari, leika af nýútkomnum geisladiski sem nefnist Hátíðarnótt. Á tónleikunum flytja þeir félagar jólalög og sálma sem hafa fylgt íslensku jólahaldi í gegnum áratugina í fallegum jazzútsetningnum. Meðal laga á disknum eru; Sjá himins opnast hlið, Það aldin út er sprungið, Jólasveinar ganga um gólf, Hátíð fer að höndum ein og Heims um ból Kaffi og jólasmákökur í boði Kalmans – listafélags. Tónleikarnir eru [...]

14. desember, 2015|

Barnastarf Akraneskirkju og KFUM/KFUK

Brátt hefst barnastarf kirkjunnar og KFUM og KFUK. Sunnudagskólinn fer fram alla sunnudag kl. 11 í kirkjunni. Kirkjuprakkarar er starf fyrir 6 - 9 ára börn. Fyrir áramót verða 5 samverur á laugardögum kl. 10 - 11.  Samverurnar fara fram í Iðnskólahúsinu bak við safnaðarheimilið Vinaminni. Það er skemmtileg dagskrá með leikjum, þrautum og ýmsu öðru ásamt fræðslu. Umsjónarmaður starfsins er Írena Rut Jónsdóttir ásamt aðstoðarleiðtogum. Samverur eru eftirtalda laugardaga: 26. sept., 17.okt., 7.nóv., [...]

8. september, 2015|

Kaffihúsakvöld Kórs Akraneskirkju

Kór Akraneskirkju heldur sína árlegu kaffihúsakvöld miðvikudagskvöldið 22. apríl og fimmtudagskvöldið 23. apríl. Dagskráin hefst kl. 20 bæði kvöldin.  Í boði verður fjölbreytt dagskrá í tali og tónum. Og í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningarétt á Íslandi, þá verður þessum elskum gert hátt undir höfði. Sérstakir gestir verða þær Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Akraness og Sigríður Thorlacius söngkona. Regína kemur í sérstakt "sófaspjall" og kaffihúsagestir fá að [...]

20. apríl, 2015|

Fyrirlestur um Hallgrím Pétursson

  Smári Ólason hélt áhugaverðan fyrirlestur um Hallgrím Pétursson í Akraneskirkju í gærkvöldi. Magnea Tómasdóttir söng. Góð kvöldstund og eftir dagskrána spunnust upp fínar umræður. Þökkum þeim innilega fyrir komuna.

25. mars, 2015|

Fermingar í Akraneskirkju 2015

  Sunnudaginn 22. mars voru 14 ungmenni fermd í Akraneskirkju. Fermingar verða sunnudagana 29. mars, 12. apríl og 19. apríl. Alls verða fermd 94 börn þetta vorið. Guðni Hannesson ljósmyndari tók þessa mynd af fermingarbörnunum þegar þau gengu til kirkju.

23. mars, 2015|

Hallgrímur Pétursson í Akraneskirkju

Þriðjudaginn 24. mars n.k. munu Magnea Tómasdóttir söngkona og Smári Ólason tónlistarfræðingur flytja dagskrá í Akraneskirkju um Hallgrím Pétursson og Passíusálma hans. Kynnt verður 93. prentun Passíusálmanna sem kom út nú í mars þar sem „gömlu lögin“ við þá eru sett út fyrir fjögurra radda blandaðan kór gerðar af Smára auk nýrrar textarannsóknar sem hann hefur gert. Dagskráin hefst kl. 20 og er aðgangur ókeypis!

21. mars, 2015|

Kór Akraneskirkju í Hörpu

Þegar sólin sigri nær! Kór Akraneskirkju heldur tónleika í Norðurljósasal Hörpu, föstudaginn 27. febrúar kl. 20. Mikil fjölbreytni einkennir efnisskrána á þessum tónleikum og endurspeglar vel  verkefnaval kórsins. Kórinn hélt sjö tónleika á síðasta ári og nú var farið í að velja úr því efni sem flutt var og búa til efnisskrá. Óhætt er að segja að farið verði víða um kórtónlistarflóruna. Ensk og íslensk þjóðlög, sænskir og enskir trúarsöngvar og jazzkórlög Tómasar R. [...]

23. febrúar, 2015|

Kirkjunni afhent rausnarleg gjöf

Guðmundur Þorvaldsson lést fyrir sex árum. Hann hefði orðið fimmtugur 31. janúar sl. ef hann hefði lifað. Í tilefni af þeim tímamótum afhenti ekkja Guðmundar, Ásdís Vala Óskarsdóttir, og synir þeirra Guðmundar, þeir Þorvaldur Arnar og Þorgils Ari, Akraneskirkju að gjöf glæsilega mynd sem Guðmundur saumaði sjálfur út í tómstundum sínum og sýnir Síðustu kvöldmáltíðina. Guðmundur var afkastamikill og vel metinn texíllistamaður. Myndinni verður komið fyrir í safnaðarheimilinu. Akraneskirkja þakkar rausnarlega gjöf og þann [...]

17. febrúar, 2015|

Raggi Bjarna ,,messar" á Akranesi

Þeir þremenningar, séra Eðvarð Ingólfsson, sóknarprestur á Akranesi, Ragnar Bjarnason söngvari og spaugari og Þorgeir Ástvaldsson útvarpsmaður og tónlistarmaður, hafa frá 2007 staðið að árlegri tónlistarguðsþjónustu, sem vakið hafa mikla athygli, í Akraneskirkju. Húsfyllir hefur verið hverju sinni. Í guðsþjónustunum syngur Ragnar þekkt lög við píanóundirleik Þorgeirs en presturinn byggir brú á milli laganna með stuttri hugvekju hverju sinni. „Þetta eru lög um lífið og tilveruna; ástir og ástarsorg, náttúrufegurð, rómantík og sjómennsku, lög [...]

3. febrúar, 2015|

Raggi Bjarna ,,messar" á Akranesi

Þeir þremenningar, séra Eðvarð Ingólfsson, sóknarprestur á Akranesi, Ragnar Bjarnason söngvari og spaugari og Þorgeir Ástvaldsson útvarpsmaður og tónlistarmaður, hafa frá 2007 staðið að árlegri tónlistarguðsþjónustu, sem vakið hafa mikla athygli, í Akraneskirkju. Húsfyllir hefur verið hverju sinni. Í guðsþjónustunum syngur Ragnar þekkt lög við píanóundirleik Þorgeirs en presturinn byggir brú á milli laganna með stuttri hugvekju hverju sinni. „Þetta eru lög um lífið og tilveruna; ástir og ástarsorg, náttúrufegurð, rómantík og sjómennsku, lög [...]

3. febrúar, 2015|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top